Þessi færsla er ekki kostuð en inniheldur auglýsingalinka.

Ég átti alltaf eftir að sýna ykkur nýja flík í fataskápnum mínum en ég hef varla farið úr henni síðan
ég fann hana í & Other Stories í Köben þegar ég var þar í lok Október en það er þessi kósý jakki eða
meme jakkinn eins og ég kalla hann. Eins og ég sagði ykkur frá um daginn þá pantaði ég svipaðann
jakka frá Ivyrevel en ég var ekki nógu ánægð með hann þegar hann kom svo ég lét endursenda hann
og var ég því ofur ánægð þegar ég rakst á þennan - hann er einmitt eins og ég vildi að hinn væri,
þykkur, kósý og í fullkomnri sídd! 

Ég tók jakkann auðvitað með mér til Stokkhólms núna um helgina og var ég í honum einn daginn
þegar við röltum um Gamla Stan við svartar gallabuxur frá Topshop, svarta kasmírpeysu sem er
líka frá & Other Stories og uppáhalds skóna mína í augnablikinu sem eru úr GK Reykjavík. Ég 
er gjörsamlega ástfangin af Stokkhólmi eftir einungis tvo daga en við komum heim í dag þegar
óveðrið var að byrja. Það er alltaf svo gott að koma heim en ég verð að viðurkenna að ég sakna
borgarinnar og stelpnanna strax - ég ætla að deila með ykkur fleiri myndum frá ferðinni okkar
á næstu dögum og gefa ykkur smá tips ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Selected // Kápuna fékk ég að gjöf.

Ég get ekki sagt ykkur hversu ánægð ég er að þessi gullfallega kápa frá Selected er loksins mín! Mig
er búið að langa í hana alveg síðan ég sá uppáhalds bloggarann minn, hana Kenzu, í henni fyrir um 
mánuði síðan. Eins og þið kannski vitið þá er ég með eitthvað æði fyrir kápum og peysum og þegar
ég mátaði þessa í Selected í dag þá var ekki aftur snúið. Ég elska litinn á henni en hann er fullkominn
fyrir vorið og svo er kápan svo létt en á sama tíma hlý og sniðið á henni er svo klassískt. Það er band
utan um mittið líka svo það er hægt að hafa hana bæði opna eins og ég er með hana á myndunum og
svo líka lokaða sem ég gjörsamlega elska.

Ég keypti kápuna í Selected í Smáralind og voru einungis 4 stykki eftir svo ég myndi hafa hraðar
hendur ef ykkur langar í - ég veit að mín verður notuð mikið í vor og sumar ♡

Ég kom heim frá Boston í gærmorgun og eftir að ég lagði mig um morguninn þá lá leið mín á
Reykjavík Fashion Festival. Ég missti af fyrri kvöldinu og því var ég mjög spennt að komast á
annað kvöldið, sjá nokkrar sýningar og eiga gott kvöld með mínum bestu. Við fórum á þrjár
sýningar og voru þær allar frábærar en Inklaw sýningin stóð upp úr og svo var ég ótrúlega
hrifin af flíkunum frá Anitu Hirlekar, öll smáatriðin voru svo falleg og kvenleg! Við kíktum
svo í lokapartýið eftir sýningarnar og skemmtum okkur konunglega - yndislegt kvöld með
yndislegum vinkonum!

Ég ákvað að fara í eitthverju mjög einföldu og þægilegu (eins og alltaf haha) en þessi kjóll
frá Missguided var fyrir valinu - hann er því miður uppseldur í augnablikinu en ég læt ykkur
að sjálfsögðu vita ef hann kemur aftur. Ég var svo í svartri Zara kápu yfir og í uppáhalds
öklastígvélinum mínum frá Public Desire (fást HÉR) ♡
Þessi færsla er ekki kostuð // Vöruna keypti ég mér sjálf.

Halló - mig langar að byrja á því að afsaka bloggleysið en ég er alveg búin að vera á fullu að
undirbúa allt fyrir jólin núna seinustu daga og svo kom ég heim frá Minneapolis í gærmorgun
en þar var ég búin að vera síðan á mánudaginn. Það var yndislegt að komast aðeins í burtu og
slaka á en það var á sama tíma svo gott að komast heim í jólasnjóinn og klára allt sem ég átti
eftir - nú er allt klárt og mikið er ég spennt fyrir helginni, það verður svo ljúft að eyða henni
með fjölskyldunni, borða góðan mat og njóta þess að vera saman.

Mig langaði að sýna ykkur þennan kjól sem ég fékk mér um daginn en ég er að íhuga að vera
í honum á aðfangadag, ef ekki þá klárlega í eitthverju öðru jólaboði. Ég kom aðeins við í einni
af mínum uppáhalds búðum, & Other Stories, þegar ég var í New York fyrir nokkrum dögum.
Ég gat að sjálfsögðu ekki farið tómhent út en þegar ég sá þennan kjól þá var ég að eignast hann
Ég elska hversu einfaldur og klassískur hann er en hann er samt svo öðruvísi þar sem efnið er
svona plíserað - hann er ekkert smá fallegur við svarta hæla og svo líka yfir svartar gallbuxur
dagsdaglega. Þetta voru heldur betur góð kaup!

Annars óska ég ykkur öllum gleðileg jól - ég ætla að taka mér smá pásu yfir helgina og njóta
með fjölskyldunni og ég vona að þið hafið það rosa gott ♡



Hi everyone - sorry about the lack of updates here over the last couple of days. I have been
getting everything ready for Christmas and then I went to Minneapolis on Monday and came
home yesterday morning. It was so nice to get away for a bit but I was so excited to come back
home to see the snow and finish everything - now everything is ready for tomorrow and I can't
wait to spend the weekend with my family, eat some good food and just enjoy being together.

I wanted to show you guys this new dress that I got when I was in New York a couple of days
ago. I am thinking about wearing it tomorrow but I also have some other options so we will
see what I pick - I really love how simple and classic it is but the fabric makes it so different.
I hope you all have a wonderful Christmas ♡
Samfestinginn fékk ég að gjöf frá Eddu.

Eins og ég sagði ykkur frá í seinustu færslunni minni þá fór ég ekki tómhent heim um daginn þegar
nýja fatalínan, Edda x Moss, launchaði í vikunni. Ég átti eiginlega bara erfitt með mig þar sem mig
langaði í allt úr línunni en ég fékk mér fjórar flíkur. Ein flíkin var gjöf frá henni Eddu og er ég alveg
í skýjunum með þennan gullfallega samfesting sem ég valdi mér. Ég kolféll fyrir honum um leið og
ég var ekki lengi að hlaupa að honum þegar ég sá hann í búðinni og næla mér í eitt stykki. Ég elska
samfestinga og þessi er sko engin undantekning - hann er svo þægilegur og fallegur á sama tíma og
ég elska djúpa hálsmálið á honum. Ég er í blúndutopp innan undir úr sömu línu og ég er mjög hrifin
af því að vera í honum innan undir, það er svo fallegt þegar blúndan kíkir aðeins upp úr! Kjóllinn sem
ég fékk mér úr línunni er einmitt með eins hálsmáli - gullfallegur eins og samfestingurinn. Ég ætla
klárlega að vera annað hvort í þessum samfesting eða kjólnum um jólin, mikið hlakkar mig til. Línan
er komin í sölu í verslunum Gallerí Sautján og í vefversluninni þeirra líka - ég mæli með að kíkja
og næla þér í eitthvað fínt. 

Nú ætla ég að skríða upp í rúm en ég er að fljúga á morgun eldsnemma og líka á sunnudeginum
svo það er mikilvægt að hvíla sig vel! Þangað til næst ♡


As I told you about in my last post I didn't go home empty handed after the launch of Edda's
collection in collaboration with Moss Reykjavík. I went home with four pieces and one of them
was this amazing low cut jumpsuit which was a gift from Edda, so sweet of her. I fell for it as 
soon as I saw it and I love pairing it with this lace top that is also from her collection. I also got
a dress that has the same low cut front and I am in love with it.

Now I am going to bed to sleep - I have to wake up super early tomorrow for work and then
again on Sunday. Until the next time ♡
RIVER ISLAND peysukjóll (HÉR)

Halló - ef þið eruð að fylgjast með mér á helstu samfélagsmiðlum þá vitið þið að ég átti afmæli í gær 
og varð 24 ára. Ég ákvað að taka mér smá pásu frá blogginu í tilefni dagsins en ég var ekki með nein
plön. Þar sem það var mánudagur og allir að vinna þá ætlaði ég bara að eyða deginum heima í kósý
og hafa svo smá kökur ef einhver myndi kíkja á mig seinnipartinn. Dagurinn varð aðeins öðruvísi en
ég bjóst við en mamma vakti mig í hádeginu og sagði mér að pakka niður í tösku - hún kom mér á
óvart og bauð mér í spa á Hótel Natura þar sem ég fór í heilnudd og svo kíktum við aðeins í pottinn
og slökuðum vel á. Það var ekkert smá æðislegt að fá svona dekur en eftir það fengum við okkur smá
að borða á Satt áður en við fórum heim til mín þar sem nokkrir fjölskyldumeðlimir kíktu við. Seinna
um kvöldið bauð Níels mér svo út að borða á Fiskmarkaðinum sem var fullkominn endir á æðislegum
degi - það er svo gott að eiga svona frábært fólk í kringum sig sem gera svona daga ógleymanlega.

Þar sem ég átti afmæli þá langaði mig að sjálfsögðu að vera smá fín þannig að ég var í nýja 
peysukjólnum mínum sem ég pantaði mér af Asos (fæst HÉR) og ég er alveg í skýjunum með
hann. Hann er svo fallegur og mikilvægast af öllu, þægilegur! Nú ætla ég að rífa mig á fætur og
fara að mála eldhúsgluggann minn - ég er að taka alla gluggana í gegn fyrir jólin og ætla að kaupa
nýjar gardínur líka, hversu fullorðins? Þangað til næst ♡


Hello - if you are following me on social media you might have noticed that yesterday was my
24th birthday. I decided to take a little break from the blog and had the most amazing day - my 
mom surprised me and invited me to the spa where I had a massage and relaxed in the hot tub
with her. We then had a quick bite to eat before going to my place where some family members
came over and we had some cake. Later that night Níels took me out to eat to a place called
Fiskmarkaðurinn or The Fish Market here in Reykjavík and it was the perfect end to the perfect
day. 

Since it was my birthday I wanted to dress up so I wore my new sweater dress that I ordered off
Asos (buy it HERE) and I absolutely love it. It is so pretty and comfortable! Now I am going to 
get my ass out of bed and paint our kitchen window - after I painted the windows in our new 
bedroom I noticed that the other ones needed to be painted so I am going to do all of the windows
before Christmas and I am also going to buy new curtains. How grown up am I? Until the next
time ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Selected á Íslandi.

SELECTED knitted coatigan (fæst í Selected Smáralind)     H&M sweater     TOPSHOP joni jeans (fást í
Topshop Kringlunni og Smáralind)     PUBLIC DESIRE boots (fást HÉR)     GIVENCHY antigona bag (fæst HÉR)

Í gær ákvað ég að draga systur mína út og taka myndir af dressi dagsins en ég fékk mér þessa 
peysukápu nýlega í Selected og varð að sýna ykkur hana - þetta er svona flík sem mig langar
helst að eiga í öllum mögulegu litum og hef ég varla farið úr henni síðan ég fékk mér hana!
Hún er svo þægileg og þó svo ég sé ekki mjög litaglöð manneskja þá elska ég litinn á henni.
Buxurnar sem ég er í eru líka nýjar en ég fékk mér þær þegar ég var í New York yfir seinustu
helgi - þær heita Joni og ég ákvað að fá mér svartar með götum á hnjánum. Ég er ekkert smá
ánægð með þær en ég er mjög picky þegar kemur að gallabuxum - þær verða að vera háar í
mittið og úr mjúku gallaefni þar sem ég veit ekki um neitt óþægilegra en stífar gallabuxur.
Þessar eru einmitt háar í mittið og ofur mjúkar svo þær fá heilar fimm stjörnur frá mér - ég
elska líka að vera í netasokkabuxum undir þeim en þessar sem ég er í eru frá Orublu og heita
Tricot, gjörsamlega elska þær!

Nú ætla ég að hressa mig við en ég ætla að skreppa í klippingu og neglur í dag áður en ég
fer snemma að sofa - það er löng vinnuhelgi framundan hjá mér. Þangað til næst ♡


Yesterday I dragged my sister outside to shoot this outfit but I wanted to show you
guys my new coatigan that I got at Selected last week - this is the type of clothing 
that I want to have in every single colour and I have hardly taken it off since I got
it. It is so comfy and even though I don't wear a lot of colours, I love the colour of
it. I paired it with black jeans, fishnet tights and a cozy sweater!

Now I am heading to get my hair cut and my nails done before going home to bed
early - I have a long work weekend ahead of me. Until the next time ♡
Kjólinn keypti ég mér sjálf.

Hversu fallegur er nýji kjóllinn minn?! Ég er gjörsamlega ástfangin af honum en ég keypti mér hann
í Vila um daginn - ég er að fara í veislu núna um helgina og var lengi búin að vera að leita mér að kjól
til að vera í en fann aldrei neinn sem mig langaði í. Í seinustu viku sá ég svo þennan og ég var ekki 
lengi að koma mér í Vila til að kaupa hann. Hann er fullkominn að mínu mati - hann er þægilegur,
léttur og svo elska ég litinn. Ég hafði hugsað mér að vera í honum yfir blúndutopp eins og hér fyrir
ofan og við svarta hæla. Hann er líka til í fallegum ljósbleikum lit og kostar hann 8.990 kr ♡

Annars verð ég að afsaka hversu lítið ég er búin að blogga núna upp á síðkastið - ég á bara smá
erfitt með að finna tíma eða innblástur til að blogga og taka myndir þar sem ég er búin að vera að
vinna rosa mikið. Nú er ég komin í vikufrí og vonandi kemur innblástrinn - ég er búin að vera
mjög dugleg heima við þegar kemur að hausthreingerningu og ætla ég að eyða næstum dögum í
að klára það og byrja á að færa okkur um herbergi. Þó svo ég ég sé ekki oft hér þá er ég alltaf
dugleg á Snapchat og set ég alltaf eitthvað þar inn daglega - @alexsandrabernh.


How beautiful is my new dress?! I am so in love with it but I found it at Vila last week - I am
going to a party on Saturday and had been searching for something to wear for a while but I
could never find anything I liked.. until now! I love the navy colour, the texture and the fit of
it - so comfortable and a little bit sexy at the same time. I am planning on wearing it with a
lace bra and some black heels - yes ♡

ASOS dress (HÉR)     & OTHER STORIES cardigan (HÉR)     GIVENCHY antigona bag (HÉR)     PUBLIC DESIRE shoes (HERE)

Nei, þetta eru ekki myndir af draugi í rosa fínu dressi heldur er þetta bara ég - eins mikið og sumarið
í ár er búið að vera gott þá er það greinilega ekki að sjá það á húðlitnum mínum haha! Ég ákvað að
draga Níels út á laugardaginn og taka myndir af dressinu mínu en ég klæddist öllum nýju uppáhalds
flíkunum mínum. Það fyrsta er auðvitað það fallegasta - nýja Givenchy taskan mín sem er held ég 
það fallegasta sem ég á! Svo er það peysan en ég fékk hana þegar ég var í New York fyrir tveimur
vikum, hún er frá & Other Stories og ég gjörsamlega elska hana. Seinast eru það nýju skórnir mínir 
en þegar ég var í London þá sá ég stelpu í svona skóm í lestinni og ég gat ekki hætt að hugsa um þá.
Ég fann þessa svo fyrir algjöra tilviljun á Instagram um daginn og auðvitað var ég ekki lengi að panta
mér þá! Ég elska hvað þeir ná hátt upp á öklann og svo eru þeir líka fáranlega þægilegir - ég pantaði
þá af Public Desire og átti eiginlega í smá vandræðum með að panta mér ekki fleiri skó, það er til
endalaust af fallegum skóm þar ♡


No, these are not pictures of a ghost in a really nice outfit, just me - we have had the best weather 
this summer but you totally can't tell if you look at my pale face haha! I decided to drag Níels out
this weekend to shoot some pictures of my outfit but I was wearing three of my favourite things
at the moment. The first one is the most beautiful of course - my new bag from Givenchy which
I am in love with! The next thing is this cardigan that I bought when I was in New York recently,
it's from & Other stories and I love it. It's so warm and goes with everything! Last but not least
I got these new shoes recently from Public Desire - I saw a girl when I was in London wearing
similar boots and I had to get a pair for myself. I found these on Instagram randomly and got
them immediately - so pretty and comfortable as well ♡

Á föstudaginn fór ég út að borða með vinkonum mínum til að fagna útskriftinni minni - smá seint en 
það er ekkert djók að finna tíma til að hittast allar þegar við erum allar að vinna, tvær af okkur eru að
fljúga og nokkrar komnar með börn. Við áttum yndislegt kvöld en við byrjuðum á Sæta Svíninu þar 
sem við fengum okkur að borða og enduðum svo heima hjá mér í kósý - fullkomið! Ég var í nýjum
kjól en ég var lengi að velta því fyrir mér hvort ég ætti að panta mér hann af Asos - ég ákvað að
sleppa því en um leið og ég kláraði pöntunina (pantaði mér svo fínan sundbol og skyrtu) þá sá ég
á Facebook að verslunin MAIA væri að selja sama kjólinn svo auðvitað fór ég þangað daginn eftir
og keypti mér hann. Ég sé sko alls ekki eftir því og eru þetta ein bestu kaup sumarsins hingað til.
Hann kostar 12.990 þar og myndi vera snögg að athuga með hann ef þig langar í, það voru bara
nokkrir eftir - hann er annars til HÉR á Asos og það er mjög einfalt og þægilegt að panta þaðan.
Ég var svo í uppáhalds leðurjakkanum mínum frá Asos við en allt í einu langar mig í svona eins
jakka nema bara úr rússkinni - ég held að ég verði að finna mér einn þannig bráðlega! 

Nú tekur við heljarinnar kósýkvöld en ég var að koma heim úr morgunflugi - það er ekkert betra
en að koma heim eftir langan dag, fara í kósýföt, setja á sig maska og liggja upp í sófa með nammi.
Þangað til næst ♡

JUST FEMALE kjóll (fæst í MAIA og HÉR á Asos)     ASOS leðurjakki (HÉR)


Last Friday night I met up with my girlfriends and we went out to dinner to celebrate my graduation.
A bit late but when you all have full time jobs, two of us are flight attendants and some have kids it
is no joke finding a time to meet up. We had such a lovely night at Sæta Svínið in Reykjavík where
we had some food and drinks and then we went to my apartment - the perfect night! I wore a new
dress but I had been back and forth if I should order it off Asos but I ended up skipping it. Right 
after I saw that a local store here in Reykjavík, MAIA, had the dress so the next dress I went and
got it. I absolutely love it and have a feeling I will be using it a lot. I wore it under my favourite
leather jacket from Asos but I am really craving a similar jacket but in suede - think I have to find
one soon!

Now I am going to have a cozy evening at home - I just came home from work and there is
nothing better than putting on sweats, take your makeup off and chill on the couch with some
candy after a long day. Until the next time ♡

JUST FEMALE dress (HERE)     ASOS leather biker jacket (HERE)
BOOHOO lounge jumpsuit - fæst HÉR

Hafiði eitthverntíman séð þægilegri flík? Ég hef neflilega ekki gert það - um daginn pantaði ég mér
nokkrar flíkur af Asos og ein af þeim var þessi grái samfestingur frá Boohoo. Ég var ekki lengi að
setja hann í körfuna eftir að ég sá hann og ég hef líka ekki farið úr honum síðan ég fékk hann. Hann
er sjúklega þægilegur og eins og þið vitið þá skipta þægindi mig öllu máli! Ég er bæði búin að nota
hann heima við og svo dagsdaglega við inniskó og létta kápu - hann er klárlega nýtt uppáhald hjá
mér. Það besta er líka að hann kostar rétt um 3 þúsund krónur, sem er gefins fyrir svona æðislega
flík. Þú getur skoðað samfestinginn betur HÉR - þú ert að missa af miklu ef þú átt ekki eitt stykki!

Ég er heima við í dag að taka myndir af nýjum vörum fyrir bloggið og svo ætla ég að fara aðeins
út í garð og njóta sólarinnar áður en ég horfi á leikinn í kvöld (já, ég ætla að horfa á hann.. veit
samt ekki hvað er að ske helminginn af tímanum en mér finnst Alfreð Finnboga rosa sætur). 
Áfram Ísland!



Have you ever seen a more comfy piece of clothing in your life? I know I haven't - the other day
I ordered some stuff from Asos and had to get this jumpsuit from Boohoo. I haven't taken it off
since it arrived and you know how much I love comfortable pieces - I have used it both just at
home and out with a light coat and some sandals. It is also so cheap so if you don't have it you
need it - it is just around $25 which is nothing for such an amazing piece! You can find it HERE.

Today I am hanging out at home shooting some new stuff and then I am going to go outside
and enjoy the good weather before the game tonight. I don't know anything about football
but I am really excited for tonight - Go Iceland!
ASOS khaki shirt dress (HERE)     TOPSHOP leigh jeans     BIANCO shoes     
ASOS choker (HERE)     CÉLINE sunglasses     ASOS bag

Ah, þið getið ekki ímyndað ykkur hversu ánægð ég er að vera að birta þessa færslu - loksins er ég
byrjuð aftur að taka outfit myndir en það er einmitt það sem mig langar helst að birta á blogginu 
en það getur verið erfitt að finna tíma til að taka myndir + maður er ekki alltaf í stuði að vera fyrir
framan myndavélina. Um leið og ég sá þessa skyrtu á Asos þá vissi ég hvernig mig langaði að
klæðast henni - ég var samt eiginlega að vonast að geta verið í henni við berar lappir líka en hún
er kannski aðeins of stutt fyrir það. Þessi litur er einn af mínum uppáhalds og svo er ég svo skotin
 í nýja chokernum mínum sem er líka frá Asos ♡

Ég er búin að eiga mjög kósý morgun heima við að pakka en ég er að fara til Chicago á eftir 
sem er mjög spennandi - ég hef aldrei farið þangað áður og því er ég mjög spennt að sjá hvað
borgin hefur upp á að bjóða. Ég er svo heppin að Thorunn Ívars bjó þar fyrir nokkrum árum og
er ég því komin með góðann to do lista. Ykkur er alltaf velkomið að fylgjast með því sem ég er
að bralla á Snapchat undir "alexsandrabernh".


Ah, you guys can't even imagine how happy I am that I am posting the first official outfit posts
of 2016! I am planning on doing them a couple of times a week this summer but it has been kind
of hard to find time to shoot + sometimes I don't feel like being in front of the camera. But now I
had to show you guys my new shirt dress from Asos - I absolutely love it and was hoping to wear
it with bare legs but it is a bit shorter than I thought so that won't work. This colour is my favourite,
this choker too ♡

I have had a very cozy morning at home but I am packing my bags and later today I am heading to
Chicago - I have never been there before so I am excited to see what the city has to offer. I am so
lucky that my friend, Thorunn Ívars, lived there a few years back so she made me a to do list.
See you guys Saturday! 
Þessi færsla er unnin í samstarfi við GS Skór // Skóna fékk ég senda sem gjöf.

Þá er dagskráin mín aðeins farin að róast en það er búið að vera brjálað að gera hjá mér seinustu 
vikurnar, þar sem ég er núna í bæði vinnu og skóla. Ég er búin að ætla að sýna ykkur nýju skóna
mína frekar lengi en hef ekki komist í það - um daginn kíkti ég aðeins í GS Skó í Smáralind og
fékk mér þessa Superga skó en mig er búið að langa í par frekar lengi og er því nokkuð sátt með
að þeir eru loksins mínir. Ég elska hvíta strigaskó, sérstaklega á sumrin, við bera sólkyssta leggi
og þægilegan kjól ♡

Skórnir frá Superga koma í helling af litum og var til dæmis hægt að velja þessa sem ég á í tveimur
mismunandi efnum, ég fékk með leður og er ég svo skotin í þeim. Þeir eru líka mjög þægilegir og
verða þessir pottþétt teknir með í stoppin í sumar - ég tók mína í einu númeri minna en vanalega
þar sem þeir eru smá rúmir, kannski gott að hafa það í huga.

Skórnir kosta á bilinu 13.995 til 20.995 ISK - HÉR getur þú skoðað úrvalið.


Things are finally calming down in my life but I have been so busy with both work and school. I 
have been planning on showing you guys my new sneakers that I recently got but haven't had any
time to shoot any photos. The other day I went to GS Skór in Smáralind and came back home with
these white leather Superga sneakers - I have been wanting a pair for a whole so I am really happy
they are finally mine. I love white sneakers, especially during the summer, with bare sunkissed legs
and a nice casual dress ♡

The sneakers from Superga come in a bunch of colours and I decided to get white leather ones
and I am in love. They are really comfortable and I will defianietly be taking these with me when
I travel this summer for work - I took mine a size down since they are a bit big.

The shoes cost from 13.995 to 20.995 ISK - you can see their selection HERE.
Þessi færsla er ekki kostuð // Flíkurnar keypti ég mér sjálf.

Góðan daginn frá Boston - ég kom hingað seint í gærkvöldi og ég var svo þreytt eftir flugið að ég fór
beint upp á hótelherbergi og rotaðist! Ég hef vanalega aldrei sofið vel í stoppum þar sem ég er svo
óvön að sofa ein (vantar Níels að tala upp úr svefni við hliðina á mér) en ég svaf eins og lamb í nótt.
Það er bara hádegi hjá mér núna og er ég að taka mig til - ég er svo spennt en leið mín liggur í...
getiði giskað? SEPHORA! Loksins erum við sameinaðar eftir 6 mánuði í burtu - ég ætla að vera 
með símann með mér svo endilega addið mér á Snapchat ef þið hafið ekki gert það enn, ég er þar
undir @alexsandrabernh.

En yfir í dressið - um daginn fékk vinkona mín hún Thorunn Ívars nett sjokk þegar ég tjáði henni
að ég ætti ekki Vicommit buxurnar frægu úr VILA. Ef þið fylgist með blogginu hennar þá vitið þið
eflaust hversu mikið hún elskar þessar buxur - það var því auðvitað ekkert annað í stöðunni en að
næla mér í eitt par og halló, þægilegustu buxur í heimi. Ég er ekkert smá ánægð með kaupin og ég
mæli sko heldur betur með þeim - þær eru svo mjúkar og þægilegar, sem er algjör nauðsyn þegar 
kemur að gallabuxum að mínu mati. Þær kosta ekki nema 5.990 kr líka - ég elska að vera í þeim við
nýju peysuna mína úr Vero Moda (nældi mér í hana í svörtu líka) og uppáhalds Bianco x Camilla 
Pihl skóna mína ♡



Good morning from Boston - I arrived late last night and was so tired after the flight that I just
went to the hotel and fell asleep! I usually don't sleep that well on stops since I am not used to
sleep alone (missing Níels talking in his sleep next to me) but last night I slept like a baby. It is
noon here at the moment and I am getting ready to go outside.. can you guess where? Yes, I am
going to Sephora finally! I haven't been in 6 months so I am super excited - if you want to see
what I am up to today you can find me on Snapchat under @alexsandrabernhard.

Over to the outfit - the other day my friend Thorunn Ívars didn't believe that I had a pair of
the Vicommit pants from VILA. If you follow her blog you know that she loves these pants
so I had to get a pair - they are seriously one of my best buys of the year so far, they are so
comfortable and they only cost 5.990 ISK. I have been wearing them over a long sweater
and with my favourite Bianco x Camilla Pihl boots ♡

Þá er ég mætt aftur í spegilinn haha - ég lofa að það fer að koma gott af honum en loksins er
 veðrið að skána og ég er komin í vorgírinn (bara því ég sagði þetta þá byrjar að snjóa aftur á
morgun, pottþétt). Systir mín er að koma heim yfir páskana en hún býr í Frakklandi og ég er ekkert
smá spennt að fá hana heim - við erum með smá plön varðandi bloggið og það besta er að hún nennir
að taka dress myndir svo þið megið búast við almennilegum outfit færslum í lok mánaðarins. Annars
var dress dagsins bara mjög einfalt og þægilegt - leggings og síð peysa virðist vera svona mitt "go to
look" seinustu dagana en það er bara allt í lagi. 

Í kvöld ætla ég að setja af stað skemmtilegan gjafaleik í samstarfi við Estée Lauder en það er
einmitt kynning á vörunum í Sigurboganum dagana 17-23. mars og það fylgir meðal annars
veglegur kaupauki með ef keypt er fyrir meira en 6.900 kr og svo er 20% afsláttur á vörunum
fram að laugardag. Ég ætla að halda gjafaleikinn inn á Facebook svo ekki missa af því - HÉR
finnur þú Facebook síðu bloggsins ♡


I am back with the mirror photos - I promise that I will soon take proper outfit photos but my
boyfriend just got a new job so I am always home alone when the lighting is good. It is starting
to look like spring here in Iceland and next week my sister is coming home for easter but as
some of you know she lives in France. She always helps me with my blog pictures so we are
going to do some shoots which I am really excited for. Today's look was super simple and comfy
and it looks like an oversized sweater and leggings are my go to look these days ♡
Skyrtukjólinn fékk ég sem gjöf frá Kastaníu, en valdi ég hann sjálf.

Ég vildi óska þess að ég kæmist upp með þetta dress sem mánudagsdressið en í staðin sit ég upp
í sófa í leggings og kósýpeysu - það er of mikill mánudagur í mér! Mig langaði samt að deila með
ykkur þessum gullfallega skyrtukjól sem ég bætti við fataskápinn minn fyrir helgina - hann er frá
sænska merkinu Twist & Tango sem fæst í Kastaníu í Kringlunni. Mér finnst verslunin Kastanía
svo einstaklega falleg og hef ég alltaf keypt Völuspá kertin mín hér heima þar og dáðst að úrvalinu
þeirra af fallegum flíkum, aukahlutum og úrum - þess vegna setti ég mig í samband við þau og
ætla ég að deila með ykkur nokkrum vörum úr versluninni. Ég var ekki lengi að velja mér þennan
svarta skyrtukjól en ég elska skyrtukjóla - það er hægt að nota þá bæði hversdags og svo við aðeins
fínni tilefni. Þegar ég sá hann þá datt mér þetta dress fyrst í hug en við þurfum að bíða örlítið lengur
til þess að geta verið berleggja hér á Íslandi (ef sá dagur kemur eitthverntíman haha). 

Mig hlakkar mjög til að deila með ykkur fleiri flíkum frá Kastaníu, úrvalið þeirra er alveg 
einstaklega fallegt - eigið góðan dag ♡

Skyrtukjóllinn er frá Twist & Tango og fæst í vefverslun Kastaníu HÉR.


I wish I could tell you this was my outfit today but instead I am sitting on the couch wearing
leggings and a cozy sweater while it is raining outside - hello Monday! I wanted to share with
you this new gorgeous shirt dress that I got before the weekend - it is from the Swedish brand
Twist & Tango and I got it at Kastanía. I love Kastanía, it is such a beautiful store and I buy
my Völuspá candles there. They have such a stunning selection of clothes, accessories and
watches so we are going to collaborate together to share some of their beautiful pieces. It
did not take a long time to pick out this dress - I absolutely love shirt dresses so it had my
name on it. I love that you can use it everyday with sandals or boots and then also for more
fancier occasions. When I saw this dress I knew how I wanted to style it but I have to wait
for a couple of months to be able to wear it without tights here in Iceland (if that day ever
comes haha).

I am super excited to share more of their selection with you, I got some pretty amazing
pieces - have a good day ♡

The shirt dress is from Twist & Tango and you can find it HERE.
Blogger Template Created by pipdig