KJÓLL: SELECTED TASKA: SAINT LAURENT SÓLGLERAUGU: QUAY AUSTRALIA
Halló frá hitanum á Ítalíu! Ég ætlaði að vera miklu duglegri að blogga á meðan ég væri úti en ég
komst að því stuttu eftir að ég kom að Ítalar eru ekki með bestu nettenginguna og er ég búin að
vera í takmörkuðu netsambandi seinustu tvær vikur og því hef ég einbeitt mér helst að því að deila
með ykkur ferðinni í gegnum Snapchat (@alexsandrabern) og Instagram (@alexsandrabernhard)
hjá mér. Nú er ég komin í ágætt samband og get byrjað að deila ferðinni með ykkur hér á blogginu
ásamt þeim þúsund myndum sem ég hef tekið. Við flugum út í byrjun Júní til Rómar þar sem við
eyddum þremur dögum og einmitt þar sem þessar myndir voru teknar. Við leigðum okkur íbúð þar
í gegnum Airbnb og vorum á æðislegum stað miðsvæðis - við eyddum dögunum okkar í Róm að
skoða okkur um, skoða hringleikhúsið, borða nóg af pasta og pítsum og bara njóta. Róm er mjög
falleg borg en á sama tíma vorum við öll mjög glöð að komast í burtu frá henni eftir tímann okkar
þar en magnið af sölumönnum á götunum er yfirgnæfandi og eru þeir mjög ágengir sem okkur fannst
mikill ókostur við borgina. Aftur á móti var maturinn, veðrið og sagan mjög heillandi.
Ég kíkti í eina af mína uppáhalds verslunum, Selected, áður en ég fór út og fékk að velja mér nokkrar
flíkur til að taka með mér út og er þessi dökkblái kjóll meðal þeirra. Ég heillaðist af honum um leið
og hef notað hann mikið hér úti. Hann er ótrúlega léttur og á þessum tíma meðgöngunar þegar ekkert
passar lengur þá er hann mjög kærkominn. Selected er bæði í Kringlunni og Smáralind og kostaði
kjóllinn 14.990 krónur ♡
Post a Comment
Kápuna keypti ég mér sjálf.
Já halló allir saman - ég vona að þið munið ennþá eftir mér en ég er heldur betur búin að vera slöpp
hér inn á og á hinum samfélagsmiðlunum mínum. Ég er búin að vera í mikilli lægð seinustu vikurnar
en þegar ég er föst í lægð þá er ég ekki að reyna að kreista úr mér efni enda vill ég frekar mynda og
blogga þegar mig langar til þess. Ég finn að ég er orðin mun skárri nú þegar snjórinn er farin og sólin
byrjuð að sjá sig en ég nýtti einmitt tækifærið í dag þar sem birtan var æðisleg að mynda nokkrar
flíkur og vörur sem ég mun deila með ykkur á næstu dögum. Svo styttist einnig í að ég geti deilt með
ykkur fyrir/eftir myndum af heimilisbreytingunum en við eigum bara eftir að setja listana á gólfin og
mála vegginn inn í svefnberhergi í dekkri lit - ég get ekki beðið eftir að klára það og deila svo með
ykkur lokaútkomunni!
Eitt af því sem ég myndaði í dag var nýjasta viðbótin í fataskápnum en eins og ég var búin að nefna
áður þá var ég í ströngu verslunarbanni í Febrúar. Það var gott að klára það en á sama tíma er ég
búin að vera mjög dugleg að missa mig ekki í að versla þar sem markmiðið mitt í ár er að versla
mér fáar en vandaðar flíkur og hugsa mig aðeins um áður en ég kaupi eitthvað. Það var einmitt
það sem ég gerði með þessa kápu en ég hafði séð hana fyrir nokkrum vikum þegar ég heimsótti
Selected og ég kolféll fyrir henni strax. Ég ákvað að kaupa hana ekki við fyrstu sýn heldur fór ég
heim og hugsaði málið í nokkra daga - þetta er snilldarráð og svínvirkar en ég hef hætt við nokkur
kaup eftir að ég byrjaði á þessu. Ef ég er enn að hugsa um flíkina nokkrum dögum seinna, þá leyfi
ég mér hana mögulega en eftir tvær vikur gat ég ekki hætt að hugsa um þessa kápu og því fékk
hún að koma með mér heim fyrir helgi. Þetta voru heldur betur góð kaup en ég hef notað kápuna
mikið eftir að ég fékk hana enda er hún fullkomin - ég elska litinn og sniðið á henni og er hún
ekki of þykk svo hún er fullkomin yfir þykkar peysur þegar það er ennþá kalt og yfir eitthvað
léttara núna í vor ♡
Kápuna keypti ég í Selected Smáralind og kostaði hún 37.990 krónur.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Selected á Íslandi.
Ég fékk það yndislega verkefni að deila með ykkur dressi úr einni af minni uppáhalds búð hérna
heima, Selected. Það er skemmtilegt tilefni en í dag opnaði Selected nýja verslun í Kringlunni og
er hún ótrúlega falleg. Það besta við nýju búðina er að loksins er komin Selected Femme deild í
Kringluna en hún var áður alltaf bara í Smáralindinni - nú er ótrúlega stutt fyrir mig að kíkja á
úrvalið og gleður það mig mjög! Í dag er miðnæturopnun í Kringlunni og því er allt í Selected
á 20% afslætti - það er um að gera að nýta sér það en ég kolféll fyrir þessu setti þar í dag og
kom það með mér heim ásamt þessum blúndubol sem ég er í undir settinu og ótrúlega kósý
ullarpeysu sem mig hlakkar til að sýna ykkur sem fyrst. Ég er með æði fyrir svona settum í
augnablikinu og er æðislegt úrval af þeim í búðinni núna en ég elska munstrið á þessu og
hvernig jakkinn er bundinn í mittið! Veislan endar ekki í dag en á morgun er opnunarpartý
í Selected Kringlunni frá klukkan 17-19 og þar verður 20% afsláttur og sérstök tilboð - mæli
með að kíkja ♡
ÉG ER Í:
SELECTED buxur - 11.990 krónur
SELECTED kimono jakki - 12.990 krónur
SELECTED blúndubolur - 4.290 krónur
Samfestinginn og töskuna fékk ég sem gjöf frá Airport Fashion í Leifsstöð.
Áður en við fórum í flugið okkar til Stokkhólms var okkur boðið að kíkja í heimsókn í verslunina
Airport Fashion í Leifsstöð og kom verslunin mér skemmtilega á óvart. Ég fer í gegnum flugstöðina
nokkrum sinnum í viku en hef voða lítinn tíma til að kíkja í búðirnar sem eru þar svo mér fannst
ótrúlega gaman að fá tækifæri til að skoða verslunina. Hún er ótrúlega flott og er úrvalið af merkjum
mikið en þarna er hægt að finna vörur frá Feld Verkstæði, Cintamani, Farmers Market, Calvin Klein,
Filippa K og By Malene Birger ásamt fleirum.
Ég fór ekki tómhent út úr búðinni en ég fékk mér þennan samfesting frá By Malene Birger og er
ég alveg í skýjunum með hann! Eins og þið vitið þá elska ég einfaldar flíkur sem eru klassískar
og þægilegar og þessi fellur undir alla þrjá flokkana. Hægt er að nota hann hversdags og við fín
tilefni við hæla eins og ég gerði hér og er hann í miklu uppáhaldi hjá mér í augnablikinu. Ég fékk
mér líka þessa litlu tösku sem er á borðinu á bakvið mig en er hún frá sama merki - svo sæt og
núna langar mig í svona stóra tote tösku en hún er komin á afmælisóskalistann minn ♡
GANNI kápa (fæst í Geysi) TOPSHOP gallabuxur ASOS peysa (fæst HÉR)
SAINT LAURENT taska SHOE THE BEAR skór (fást í GK Reykjavík)
Tvö outfit á innan við viku - þetta hlýtur að vera eitthvað met og ég er að elska það! Þetta eru
uppáhalds færslunar mínar þegar ég skoða blogg sjálf og því finnst mér sjúklega gaman að taka
fallegar myndir af dressi dagsins og deila með ykkur. Ég byrjaði daginn minn á að fara á viðburð
með Þórunni í Ikea en það var verið að forsýna línuna sem HAY hannaði fyrir Ikea, ótrúlega fallegt
og gaman að fá að sjá hana áður en hún kemur í sölu. Það var svo fallegt veður að við ákváðum að
nýta tækifærið og mynda en það er ekki oft sem veðrið býður upp á það á þessum tíma ársins!
Ég er búin að lifa í Ganni kápunni minni síðan ég fékk mér hana en ég er ennþá alveg í skýjunum
með kaupin! Þetta er einmitt sem ég leitast eftir þegar ég versla mér flíkur en ég vill geta notað þær
við hvað sem er í eins langan tíma og mögulegt. Í dag var ég í henni yfir svartar gallabuxur og þessa
hvítu peysu sem ég pantaði mér af Asos um daginn en ég gjörsamlega elska hana - oversized og
fullkomin hversdagspeysa sem virkar við pils, gallabuxur og þægilegar buxur líka! Skórnir eru
líka nýjir en þeir eru frá merkinu Shoe and the Bear og fást í GK Reykjavík - ég sá þá á Instagram
hjá þeim og fór næsta dag að skoða þá betur. Ég gat auðvitað ekki skilið þá eftir en þeir eru bæði
gullfallegir og þægilegir sem gerist nú ekki oft - fullkomnir hversdagsskór þegar manni langar
að vera aðeins fín ♡
Þessi færsla er ekki kostuð en inniheldur hún auglýsingalinka // Allar vörur keypti ég mér sjálf.
Það var svo allt of fallegt veður í gær þannig ég og Þórunn ákváðum að skella okkur út í smá
myndatöku - ég fékk ansi stóran pakka frá Asos deginum áður en í honum var meðal annars þetta
gullfallega pils og þessi svarta peysa. Ég sá strax fyrir mér ákveðið dress og hér höfum við það!
Ég klæddist nýrri kápu yfir en ég fékk mér þessa svörtu síðu kápu frá danska merkinu Ganni í
Geysir fyrir nokkrum dögum - ég hef varla komist úr henni enda er ég alveg í skýjunum með
þessi kaup. Ganni er eitt af mínum uppáhalds merkjum og hefur mig lengi langað í þessa kápu
í svörtu (ég keypti mér hana í grænu fyrr á árinu, sjá færslu HÉR) þar sem hún er svo klassísk
og eitthvað sem ég mun alltaf eiga og nota mikið ♡
ZARA biker jakki TOPSHOP peysa SELECTED buxur
GS SKÓR skór SAINT LAURENT taska
Halló - ég ætlaði að vera löngu búin að deila með ykkur hluta II af Frakklandsferðinni okkar
en tölvan mín dó allt í einu á mánudaginn og því er hún í viðgerð. Ég er að vona að hún verði
ekki of lengi í viðgerð þar sem skólinn byrjar bráðlega og ég er smá vængbrotin þegar ég næ
ekki að blogga reglulega. Ég mun því deila með ykkur myndunum um leið og ég fæ hana í
hendurnar. Ég stalst aðeins í tölvuna hans Níelsar til að sýna ykkur myndir af dressi dagsins
en ég klæddist sama dressinu í dag og í gærkvöldi, úbs.
Jakkinn er nýr en ég fékk hann í Zara fyrir helgi. Ég var þar til að skipta buxum þegar ég sá
þennan gullfallega ólífugræna biker jakka og ég varð að taka hann með heim. Þessi litur er í
svo miklu uppáhaldi hjá mér og er fullkominn fyrir haustið! Ég var í honum yfir hvíta stutta
Topshop peysu og þessar buxur frá Selected sem ég fann í fataskápnum mínum um daginn.
Þær voru enn með verðmiðanum á sem ég skil ekki alveg en mér líður smá eins og ég hafi
fundið falin fjarsjóð - þær eru svo þægilegar og fallegar! Þangað til næst ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Selected á Íslandi.
Í gær lá ég í rólegheitunum úti á bakvið í tölvunni þegar þessi skyrtukjóll greip athygli mína. Ég vissi
um leið að ég þyrfti að eignast hann enda elska ég skyrtukjóla og hvað þá þegar þeir eru í uppáhalds
litnum mínum! Kjóllinn er úr Selected í Smáralind sem er ein af mínum uppáhalds verslunum hér
heima og ég gat gjörsamlega ekki beðið eftir að sýna ykkur hann svo ég dobblaði góða vinkonu að
taka nokkrar dress myndir af honum. Ég klæddist honum yfir svartan blúndukjól en það er fullkomið
að vera í þannig kjól undir þar sem það er svo fallegt þegar það sést aðeins í blúnduna að neðan. Þessi
er fullkominn í sumar, bæði hér heima og erlendis. Hann kostaði 15.490 krónur ♡
Myndir teknar af Þórunni Ívars.
SAINT LAURENT taska GUCCI sólgleraugu
Hversu geggjað er þetta veður sem er búin að vera í allan dag?! Ég er búin að vera mjög svekkt með
sumarið eins og allir aðrir íslendingar en vá hvað ég var ánægð með daginn í dag og þá sérstaklega
því loksins kom gott veður þegar ég var í fríi í vinnunni. Ég er alltaf að vinna þegar það er sól svo
þessi dagur var mjög velkominn. Um leið og ég vaknaði þá fór ég út á bakvið og lá í sólinni í nokkra
klukkutíma áður en ég skellti mér í kjól (halló, ég var berleggja og varð aldrei kalt - hversu geggjað)
og hitti vinkonur mínar. Við fengum okkur að borða niður í bæ í sólinni og röltum um miðbæinn.
Þetta var svo ljúfur dagur og einmitt það sem ég þurfti - ég er búin að vera að vinna rosalega mikið
seinustu vikur en eftir helgina er ég komin í sumarfrí í heilan mánuð. Ég hef aldrei farið í sumarfrí
áður svo ég er ótrúlega spennt. Ég stoppa nú samt ekki lengi á Íslandi eftir stoppið sem ég fer í um
helgina þar sem ég og Níels erum á leið í draumafrí á stað sem mig hefur lengi dreymt um að fara
á en meira um það seinna ♡
VERO MODA jakki & OTHER STORIES peysa (HÉR) TOPSHOP gallabuxur
SAINT LAURENT taska GS SKÓR hælar GUCCI sólgleraugu
Þó það sé komið sumar þá breytist ég ekkert, litagleðin heldur áfram hjá mér (eða þannig). Ég
sýndi ykkur þennan rúskinn jakka úr Vero Moda um helgina en ég hef varla farið úr honum síðan
hann varð minn - elska svona flíkur sem virka við gjörsamlega allt. Ég klæddist honum auðvitað í
dag yfir svarta peysu og svartar rifnar gallabuxur en þetta er eitthvað sem ég er mjög oft í þegar ég
nenni ekki mikið að pæla í outfitti, klikkar ekki. Skórnir eru líka nýjir en þá fékk ég í GS Skóm í
byrjun mánaðarins - upprunalega ætlaði ég að fá mér þá í svörtu en þegar ég sá þennan ljósa lit þá
skipti ég fljótt um skoðun. Þessir eru svo fullkomnir í sumar og það eru nýju sólgleraugun mín líka
en þau eru loksins mín. Mig var búið að langa í þau í nokkrar vikur og loksins fann ég þau núna í
vikunni ♡
BIANCO x CAMILLA PIHL skór SAINT LAURENT taska
Myndir teknar af snillingnum Þórunni Ívars!
Nei ég gat ómögulega sleppt því að hafa seinustu myndina með - hún lýsir þessari myndatöku og bara
myndatökum úti á Íslandi almennt, það er alltaf rok! Ég átti yndislegan gær í dag með Þórunni Ívars
vinkonu minni en við byrjuðum daginn á hádegismat á Bazaar og síðan náði ég að plata hana að taka
nokkrar myndir af dressi dagsins en ég var loksins að nota Ganni kápuna mína í fyrsta skipti. Ég er
gjörsamlega ástfangin af henni en bæði sniðið og liturinn er svo mikið ég - hún verður eflaust ekki
mikið notuð í sumar enda frekar þykk en hún var fullkomin í rokinu í gær. Ég var í henni yfir peysu
frá & Other Stories (sem ég nota mikið, á hana í þremur litum núna úbs) og var í uppáhalds Joni
gallabuxunum mínum úr Topshop við. Ég var svo að sjálfsögðu með nýju töskuna mína en hana
nota ég mikið dagsdaglega - það er svo þægilegt að geta bæði haldið á henni og haft hana utan
um mig með löngu keðjunni. Við enduðum svo á því að kíkja á miðnæturopnunina í Smáralind
áður en ég kom heim og var löt restina af deginum - yndislegur dagur í alla staði ♡
Subscribe to:
Posts (Atom)


















