Þessi færsla er unnin í samstarfi við Yves Saint Laurent á Íslandi // Vörurnar fékk ég sem gjöf.

Íík, ég get ekki hætt að stara á þessar myndir - ég gjörsamlega elska hversu fallegar þessar vörur
frá Yves Saint Laurent eru! Eins og þið eflaust vitið þá er merkið eitt af mínum allra uppáhalds
snyrtivörumerkjum og finnst mér alltaf jafn gaman að deila með ykkur vörum frá merkinu. Mín
uppáhalds vara frá merkinu er All-In-One BB kremið en það er eitthvað sem ég gæti ómögulega
lifað án (svona í alvörunni, farið bara núna út í Hagkaup og nælið ykkur í það). Um daginn fékk
ég nokkrar nýjar vörur frá merkinu sem eru nýkomnar í verslanir og er ein vara sem stendur upp
úr og það er að sjálfsögðu nýr farði. Ég er búin að bíða ótrúlega spennt eftir þessum farða lengi
en þetta er Encre De Peau farðinn eða Fusion Ink í "cushion" formi. Upprunalegi farðinn finnst
mér æðislegur á sumrin, en þar sem hann þornar frekar mattur á húðinni þá hentar hann mér ekki
á veturna þar sem húðin mín er mjög þurr. Cushion farðinn á hins vegar að vera meira ljómandi
og því var ég mjög spennt að prófa hann. 

Það sem mér finnst vera best við þennan farða eru umbúðirnar. Þar sem ég ferðast mikið þá
vill ég helst ekki vera með fljótandi farða í flugfreyjuveskinu og er þessi því mjög hentugur 
fyrir mig. Það er líka mjög auðvelt að fríska upp á farðann yfir daginn og bæta á hann ef þess
þarf sem mér finnst æðislegt. En yfir í farðann sjálfann - það sem kom mér mest á óvart er
hversu mikil þekja er í honum. Ég nota Beauty Blender til að setja hann á og þarf ég bara að
dýfa honum einu sinni ofan í farðann til að fá nóg fyrir allt andlitið. Það er fullkomið svona
klukkan fimm á morgnanna þegar maður er með bauga fyrir allan peninginn! Hann er ekki 
eins mattur og fljótandi farðinn en hann er ekki of ljómandi - hann er bara fullkominn að
mínu mati. Ég gæti ekki mælt meira með þessum farða en þetta er nýtt uppáhald hjá mér!

Ég fékk nokkrar vörur í viðbót en ég hef ekki haft tíma til að leika mér með þær allar enn
en það eru tvær vörur í viðbót sem ég er að elska. Fyrsta varan er Lip Perfector en þetta er
æðislegur varasalvi sem nærir þurrar varir og "exfoliatar" þær líka svo þær verða ótrúlega
mjúkar og fínar. Þessi er búinn að vera í veskinu mínu síðan ég prófaði hann fyrst og er
ekkert á leiðinni neitt! Hin varan er nýr varalitur en hann heitir Vernis Á Lévres Vinyl
Cream og er í litnum 404 Nude Pulse - þetta er fullkominn nude litur með svo fallegri 
áferð, elska hann. Vörurnar frá Yves Saint Laurent fást í Lyf & Heilsu Kringlunni og
nokkrum verslunum Hagkaups ♡


 
 Þessi færsla er unnin í samstarfi við Origins á Íslandi // Vörurnar fékk ég sem gjöf.

Jæja, þá er ég loksins að fá tækifæri til að setjast niður og segja ykkur frá öðru æðislegu merki sem 
var að komast til landsins í seinustu viku. Það er búið að vera svo mikið um að vera og eru nokkur
ný merki komin í sölu hérlendis sem er æðislegt - eitt af þeim er merkið Origins en ég var svo yfir
mig ánægð þegar ég frétti að það var á leiðinni til landsins. Ég er búin að vera að nota vörur frá
merkinu síðan ég kynntist því fyrst almennilega seinasta sumar í fjölmörgu heimsóknum mínum í
Sephora - þar kynntist ég uppáhalds vörunni minni frá merkinu en það er Drink Up maskinn sem 
er það besta sem ég veit um fyrir þurra húð (þið þurfið að eignast hann, helst í gær bara). 

Um daginn fór ég í æðislegt boð þar sem við fengum að skoða vörurnar frá merkinu og pota aðeins
í þær og guð, mig langar núna í gjörsamlega allt! Ég er með svo mikið æði fyrir húð- og dekurvörum
og þær vörur sem ég hef prófað frá Origins eru svo ótrúlega góðar - ég er þess vegna svo ánægð að
geta nálgast þessar vörur hér heima og er ég strax komið með smá óskalista yfir vörur sem ég þarf
að eignast. Að sjálfsögðu vorum við svo leystar út með gjafapoka en hér að ofan eru þær vörur sem
leyndust í pokanum mínum. Ég er aðeins búin að vera að prófa þær og er ég strax ekkert smá hrifin
af þeim - A Perfect World hreinsirinn er yndislegur og langar mig liggur við að borða hann þar sem
lyktin af honum er svo góð. Hann hreinsar vel öll óhreinindi af húðinni og inniheldur andoxunarefni
og hvítt te. Ég fékk líka krem úr sömu línu sem ég á eftir að prófa en hin varan sem ég var líka búin
að prófa er By All Greens - þetta er ekkert smá skemmtileg og góð vara en þetta er djúphreinsandi
maski. Hann freyðir á andlitinu og hreinsar húðina ótrúlega vel, mér finnst mjög gott að nota hann
einu sinni í viku til að hreinsa húðina extra vel og dekstra aðeins við hana. 

Origins er komið í sölu í Lyf og Heilsu Kringlunni og líka í Hagkaup Smáralind. Ég mæli með
að kíkja á úrvalið og prófa nokkrar vörur, þú verður sko ekki fyrir vonbrigðum ♡


Vöruna fékk ég sem gjöf frá Urban Decay á Íslandi.

Í tilefni þess að það eru bara tveir dagar í komu Urban Decay til Íslands þá ætla ég að deila með 
ykkur einni vöru frá merkinu sem hefur verið í stanslausri notkun síðan ég fékk hana en það er
Naked Basics pallettan sem leyndist í gjafapokanum okkar eftir Urban Decay partýið. Ég hafði
ekki prófað neina augnskugga áður frá Urban Decay (já, ótrúlegt en satt þá á ég engar Naked
 pallettur) svo ég var ótrúlega spennt fyrir þessari. Mér finnst stærðin á henni svo fullkomin þar
sem ég ferðast mjög mikið og því er mjög hentugt að taka hana með í stopp. Það eru fimm litir
í pallettunni og er hægt að nota hana til að gera mjög einfalda augnförðun eins og ég geri en svo
er hægt að fara aðeins meira í dökku litina og gera dekkri kvöldförðun. Það sem ég hef verið að
gera er að nota þriðja litinn, WOS, á allt augnlokið og svo nota ég smá blöndu af Naked 2 og 
Faint í "creasið" - augnskuggarnir eru ótrúlega mjúkir og það er mjög auðvelt að blanda þeim.

Ég mæli mjög með þessari pallettu og hlakka til að næla mér í fleiri vörur frá Urban Decay 
núna á laugardaginn 5. nóvember þegar verslunin opnar í Hagkaup Smáralind kl. 10:00. Það
verður ótrúlega gaman og mikið um að vera - 100 fyrstu sem mæta fá glaðning frá merkinu
og svo verður líka happdrætti. Mikið hlakka ég til ♡



Since there are only two days until the Urban Decay store opens here in Iceland I wanted 
to share with you a favourite of mine from the brand, the Naked Basics pallette. The size
of it is perfect for me since I travel quite often and I really don't need more than this when
I am working. The shadows are really easy to blend and I absolutely love this pallette ♡

Þessi færsla er ekki kostuð // Vöruna keypti ég mér sjálf.

Eins og þið vitið eflaust þá elska ég allt sem við kemur húðinni - góð húðumhirða og farðar eru í
miklu uppáhaldi hjá mér og ef einhver mælir með eitthverju tengt húðinni þá verð ég auðvitað að
prófa. Um daginn var ein flugfreyja að tala um púðrið sem hún notar og sagði hún að hún þyrfti 
ekki að nota hyljara með og að húðin yrði "airbrushed" - ég var sold strax! Þegar ég var í Harrods
í London að kaupa Givenchy töskuna þá rölti ég framhjá snyrtivörudeildinni og sá púðrið og ákvað
að prófa það. Ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum en ég er búin að vera að nota það daglega síðan
ég fékk mér það - bæði í flugi og ekki. Eftir að ég nota primer þá set ég smá hyljara á þá staði sem
ég þarf og set svo púðrið yfir allt andlitið - það er ótrúlega létt, hylur mjög vel og það besta er að
það sest ekki í fínar línur sem mér finnst aðrir farðar oftast gera. Það heitir Vitalumiére og er laust
púður - það fylgir með lítill kabuki bursti sem er mýkri en allt, ég mæli svo mikið með þessu ♡ 


As you probably know I love everything that has to do with the skin - good skincare and
foundations are my favourite thing when it comes to beauty and if someone recommends
something to me that has to do with that I have to try it out. That was the case with this
Vitalumiére powder foundation from Chanel - a coworker recommended this to me and
when I saw it at Harrods in London I had to try it out for myself. I have been using the
powder for a week now and I am in love - it feel so light on the skin, covers everything
that I want covered and doesn't set into my fine lines. I really recommend this one ♡
Vöruna í þessari færslu fékk ég senda sem gjöf.

Ef þið hafið fylgst með mér í smá tíma þá vitið þið eflaust að ég elska að prófa nýja farða - fullkomin
húð er í miklu uppáhaldi hjá mér og er ég alltaf að leita að hinum fullkomna farða. Ég hef komist ansi
nálægt því með nokkra og er nýji Syncro Skin farðinn frá Shiseido meðal þeirra. Hann uppfyllir allt
sem ég er að leitast eftir - hann er léttur á húðinni, gefur fallega og náttúrulega áferð en hylur samt
allt sem þarf að hylja og hann helst á allan daginn, sem er bráðnauðsynlegt fyrir fluffur eins og mig. 
Farðinn inniheldur líka SPF 20 sem er æðislegt og tók ég hann í litnum Neutral 1 sem er aðeins of
ljós fyrir mig í augnablikinu en í vetur verður hann fullkominn - núna í sumar hef ég verið að blanda
aðeins dekkri farða við hann sem virkar mjög vel. Þetta er fyrsta varan sem ég prófa frá Shiseido og
er ég mjög spennt að prófa fleiri þar sem þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér og er komin til að vera í
snyrtitöskunni minni ♡

Annars er ég stödd í Seattle í augnablikinu að hafa það notalegt - ég kom hingað seinnipartinn á
íslenskum tíma í gær sem er hádegi hér (frekar steiktur tímamismunurinn) og ég tók smá rölt um
miðbæinn í gær og dagurinn í dag fer í algjöra afslöppun sem ég hata nú ekki. Þangað til næst!



If you have been following me for a while you know that I love trying out new foundations. I
recently tried out the new Syncro Skin foundation from Shiseido and oh my, it is everything that
I want in a foundation. It feels light on the skin, gives a beautiful and natural finish but still covers
what needs to be covered and it stays on all day. It also has SPF 20 which I love - this one is here
to stay ♡
Þessi færsla er ekki kostuð // Vörurnar keypti ég mér sjálf. 

Þegar maður á vinkonu sem er líka bloggari þá gerist það ansi oft að hún lofsyngur vörur og auðvitað
enda ég ofast á því að kaupa mér þær - það var einmitt málið með þessar tvær vörur frá Skyn Iceland
en hún Þórunn Ívars elskar þær og varð ég bara að prófa. Ég skil núna alveg afhverju en ég er sjálf
orðin ástfangin af þessum tveimur vörum - húðin mín hefur ekki verið svona góð í langan tíma og 
er ég núna spennt að þrífa hana á kvöldin. Fyrsta varan er Artic Face Oil en þetta er 99,9% Camelina
Oil og blanda ég nokkrum dropum af henni við annað hvort Origins rakamaskann eða Embryolisse
kremið mitt á kvöldin og ég vakna með dúnmjúka og ljómandi húð. Olían gefur húðinni raka og með
tímanum minnka fínar línur sem er fullkomið fyrir mig en ég er byrjuð að sjá smá af þeim upp á
síðkastið, það fylgir víst bara aldrinum. Hin varan er Nordic Skin Peel en þetta eru bómulaskífur
með ávaxtasýrum í og skrúbba þær og djúphreinsa húðina - ég nota þær 3x í viku og hreinsa þær
mjög vel og kæla húðina sem er ótrúlega þægilegt. Það er sagt að maður eigi að sjá árangur strax
og get ég alveg tekið undir það - skífurnar hjálpa við að hreinsa úr svitaholum og hjálpa við
endurnýjun húðarinnar. Báðar vörurnar fást hér heima á Nola.is og mæli ég með að þið prófið,
þessar tvær eru komnar til að vera hjá mér og hlakkar mig til að prófa fleiri vörur frá Skyn
Iceland ♡



When you have a good friend who is a blogger as well it happens quite often that she recommends
something and you end up buying it the next minute - that is exactly what happened the other day
but Þórunn Ívars is always raving about these two products from Skyn Iceland so of course I had
to try them out. Now I know why she loves them so much - my skin has never been this good!
The first product that I got is the Artic Face Oil which is 99,9% Cameline Oil and I love mixing
it with my Origins mask or my Embryolisse cream before I go to bed - when I wake up my skin
is silky smooth and glowing. The other product is called Nordic Skin Peel and this is perfect
for scrubbing and deep cleaning the skin - I use this 3x a week and almost everytime I come
home from work. This cleans the skin so well and gives a nice cooling effect which I love.
You can buy the products from Skyn Iceland at Nola.is in Iceland ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Clinique á Íslandi.

Það er ansi langt síðan að ég birti umfjöllun hér á blogginu en ég er ótrúlega spennt að segja ykkur
aðeins frá nokkrum nýjum vörum frá Clinique sem ég er orðin ástfangin af - ég er búin að vera að
nota Chubby in the Nude farðann frá Clinique nú í nokkrar vikur og guð minn góður, afhverju er ég
ekki löngu byrjuð að nota svona "stick" farða?! Ég var smá smeyk að prófa hann fyrst en hann kom
mér mjööög á óvart - það er ekkert smá auðvelt að blanda hann út en ég átti einmitt von á því að
það yrði vonlaust. Mér finnst best að nota rakann Beauty Blender til að dreifa úr farðanum og er
þekjan nokkuð góð en náttúruleg á sama tíma. Ég set bara eina umferð þar sem ég fýla létta farða
en ef þig langar í aðeins meiri þekju þá er ekkert mál að byggja hann upp. Annað sem ég hef verið
að nota og elska er Chubby Stick Sculpting Contour og nota ég þetta "stick" á kinnbeinin og ennið
til að gefa andlitinu smá hlýju og skyggja örlítið - það er sama sagan með þessa vöru, það er ekkert
smá auðvelt að blanda henni og er ég orðin húkt á þessu. Persónulega finnst mér Beauty Blenderinn
bestur að blanda út kremvörum en ég hef líka verið að nota Clinique Buff Brush og það kemur mjög
vel út - hann er frekar þéttur í sér og skilur ekki eftir neinar rákir á andlitinu. 

Allar þessar vörur frá toppeinkunn frá mér og mæli ég heldur betur með - ég fékk svo líka nýja
Beyond Perfecting farðann og ætla ég að fara í að prófa hann á næstu dögum! Ég vona að þið
eigið yndislega helgi en ég ætla aðeins að taka mér smá frí yfir helgina og fara til Chicago með
Níelsi. Hann átti afmæli í gær og langaði mig svo að bjóða honum í tvær nætur og sýna honum
þessa æðislegu borg sem ég er orðin ástfangin af - þið getið að sjálfsögðu fylgst með okkur á
Snapchat undir @alexsandrabernh ♡


It has been a while since I told you about some beauty products that I am loving so today I am
going to tell you a little bit about these new Clinique goodies that I have been using lately. The
first one is the Chubby in the Nude stick foundation which I was hesitant about at first since I
hadn't tried out a stick foundation before but wow, I absolutely love it now. The coverage is light
but buildable and it blends out so easily. Another thing that I have been loving is the Chubby
Stick Sculpting Contour - works so well to give the face some warmth and contour it a little
bit. I either use a damp Beauty Blender when using these two products or the new Buff Brush
from Clinique which works super well also.

I will be taking the weekend off from the computer but I am going to Chicago tomorrow with
Níels. He celebrated his 26th birthday yesterday so I wanted to invite him to Chicago for two
nights and show him around - really looking forward spending the whole weekend with him.
You can follow me on Snapchat to see what we are up to - you can find me there under
@alexsandrabernh ♡
Nokkar vörur í þessari færslu voru fengnar sem sýnishorn, þær eru merktar
með stjörnu. 

Það er ekki langt síðan að ég birti seinast uppáhalds snyrtivörurnar mínar en ég er búin að fá
nokkrar nýjar vörur upp á síðkastið sem eru strax orðnar mikið uppáhald. Ég komst loksins í
Sephora um daginn eins og flestir sáu kannski á Snapchat og þar kom ég að sjálfsögðu ekki
tómhent út. Ég ætla að segja ykkur aðeins betur frá þeim vörum sem ég hef ekki getað látið
frá mér seinustu vikurnar ♡

*Marc Jacobs Daisy Blush: Ég var svo spennt fyrir nýju sumarilmunum frá Marc Jacobs
en ég fékk ilminn Daisy Blush og halló, sumar í flösku. Ég ætla ekki að segja of mikið þar
sem það kemur inn sér færsla um ilminn í vikunni og það leynist kannski smá glaðningur
handa ykkur með.

*The Balm Batter Up: Þetta eru krem augnskuggar og fékk ég þrjá liti að gjöf frá yndislegu
Evu hjá Line Up. Litirnir Moonshot og Dugout eru búnir að vera notaðir mikið og elska ég
hversu lengi þeir duga. Ég hef notað þá yfir allt augnlokið þegar ég fer í flug og þeir eru enn
á sínum stað þegar ég kem heim aftur. 

Ole Henriksen Truth Serum Collagen Booster: HALLÓ! Hvar var ég án þín? Mig er búið
að langa svo í þessa vöru ótrúlega lengi og ég fékk kassa með prufum frá Ole Henriksen um
daginn í Sephora. Ég trúi einfaldlega ekki hversu góð þessi vara er og hefur hún bjargað þurru
húðinni minni! Það er líka svo yndisleg og fersk lykt af henni.

Ole Henriksen African Red Tea Foaming Cleanser: Þessi vara var líka í kassanum og átti
ég eiginlega ekki von á að fýla hana. Þetta er hreinsir sem freyðir og er án djóks mandarínu
lykt af henni sem ég fýla eiginlega ekki - en þessi hreinsir tekur allt af andlitinu á nokkrum
sekúndum og er hún því í uppáhaldi.

Armani Luminous Silk Foundation: Mig langaði að prófa nokkra farða úr Sephora svo ég
fékk prufu af þessum farða sem ég er búin að heyra endalaust af góðum hlutum um. Ég hef
notað hann tvisvar, bæði skiptin í vinnunni og vá - áferðin á honum er ótrúlega falleg og hann
helst á mjög lengi sem er kostur fyrir fluffuna. Ég er mjög nálægt því að kaupa mér hann í
fullri stærð í næsta stoppi!

*Anastasia Beverly Hills Glow Kit in "Gleam": Ég fékk þessa pallettu fyrir nokkrum vikum 
og er liturinn "Crushed Pearl" uppáhalds - hann er gullfallegur og það eina sem ég hef notað
síðan ég fékk pallettuna. 



I just recently posted my current favourite beauty products but I have been trying out so many
new products recently so I had to make a new one. If you want to read what I think about the
products above, please use Google Translate ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Bobbi Brown á Íslandi.
Vöruna fékk ég senda sem gjöf.

Um daginn komu mjög spennandi nýjungar í verslanir frá Bobbi Brown - maskar! Ég gjörsamlega
elska maska og nota þá nokkrum sinnum í viku og var ég því mjög spennt að prófa þessa nýju maska.
Þeir eru þrír; Instant Detox, Radiance Boost og svo Skin Nourish sem ég ætla að segja ykkur aðeins
frá í dag. Skin Nourish maskinn er rakamaski sem nærir húðina og gerir hana silkimjúka - þar sem 
ég er með þurra húð þá finnst mér mjög gott að nota svona rakamaska bara sem næturkrem og hef
ég einmitt verið að nota þennan maska þannig. Eftir að ég tek allan farða af mér á kvöldin og hreinsa
húðina mína vel þá ber ég smá af maskanum á húðina og leyfi honum að malla á meðan ég sef. Ég 
vakna þá með silkimjúka og vel nærða húð! Það sem ég elska við þennan maska er að það þarf mjög
lítið af honum og endist hann þér því mjög lengi, sem er æðislegt þar sem hann er í dýrari kantinum.
Það er einnig mjög fersk og góð lykt af honum og hann hentar húðinni minni mjög vel. 

Ég get í raun og veru ekki fundið neinn galla við þennan maska, ég mæli mjög mikið með honum
ef þú ert þurr eða vantar smá auka raka! Ég á tvo aðra rakamaska og þessi er mun léttari en þeir 
sem er algjör kostur, þetta er algjör rakabomba en maður finnur ekki fyrir honum á húðinni. Það
er einmitt kynning á Bobbi Brown vörum í Lyf&Heilsu Kringlunni frá fimmtudegi til sunnudags
og því fullkomið tækifæri til að fara og næla sér í maskann eða uppáhalds kremið mitt frá þeim,
Vitamin Enriched Face Base á 20% afslætti. Ekki missa af þessu ♡

Maskanir fást í Lyf&Heilsu Kringlunni og Hagkaup Smáralind.
Þeir kosta um 9.499 ISK en verðið er mismunandi eftir sölustöðum.



The other day Bobbi Brown launched some new goodies - masks! I absolutely love masks and
use them a couple of times a week so I was super excited to try these out. There are three types
of masks; Instant Detox, Radiance Boost and Skin Nourish, which I am going to tell you more
about today. The Skin Nourish one is a moisture mask which gives it moisture and makes it
super soft - since I have dry skin I had to try this one out. I love using moisture masks as a
night cream and that is how I have been using this one. After I remove all my make up and
clean my skin I apply the mask and let it do it's job overnight. When I wake up my skin is
so soft and not at all dry! What I also love about this mask is that you need the smallest
amount each time which is amazing as it is a pretty pricey product. The smell is also so
fresh and nice.

I can't find any cons about this mask, I really recommend it if you have dry skin or are
looking for some extra moisture! I have two other moisture masks but this one is super
light and I can't feel it on my face at all which is a plus. A new favourite of mine ♡


Vöruna fékk ég senda sem sýnishorn - ég nota litinn B10.

Fyrir ekki svo löngu kom nýr farði á markaðinn frá Yves Saint Laurent. Ef þið hafið fylgst með 
blogginu mínu lengi þá vitið þið að Yves Saint Laurent er eitt af uppáhalds merkjunum mínum og
var ég mjög spennt þegar ég frétti af þessari nýjung. Þetta er semsagt nýr Touche Éclat farði og er
eiginlega upprunalegi Touche Éclat farðinn endurbættur - hann var rosa vinsæll en ég hef aldrei
prófað hann svo ég vissi í raun og veru ekki við hverju ég ætti að búast. Ég er gjörsamlega klikkuð
í farða og er það örugglega sú vara sem ég er mest hrifnust af þegar það kemur að snyrtivörum, því
var ég mjög spennt að prófa hann.

Ég er búin að nota farðann í rúmar þrjár vikur núna, sem er ekkert rosalega langur tími en hingað
til er ég virkilega hrifin. Farðinn er í léttari kantinum en gefur samt góða og ljómandi þekju - ég er
með þurra húð svo ég þarf að passa mig að vera búin að undirbúa hana vel áður en ég nota farðann.
Ég myndi hafa það í huga ef þú ert þurr. Það er SPF 22 í honum og ég fékk líka þennan bursta með
sem er ótrúlega skemmtilegur - það er Y í hárunum og þar á maður að setja farðann og bera svo á
andlitið. Burstinn er fínn en ég teygi mig frekar í Beauty Blenderinn minn þar sem mér finnst það
mun þægilegra. Ég hef þó notað burstann í hyljara og það var æði - hann er mjög þéttur svo hann
gefur góða þekju. Ég ætla að deila með ykkur kostum og göllum við farðann hér að neðan.



Recently Yves Saint Laurent came out with an advanced formula of their popular Touche Éclat
foundation. If you have been following my blog for a while you probably know that Yves Saint 
Laurent is one of my all time favourite make up brands so you can imagine how excited I was
to try out this foundation. I have never tried out the original one so I didn't really have any clue
what to expect. I am such a foundation hoarder and it is definitely my favourite thing to buy 
when it comes to make up and beauty. 

I have now been using this foundation for about three weeks, which isn't that long of time but
so far I really like it. It is more on the light side but it gives such a nice and glowy finish. I have
dry skin so it is necessary for me to prep it really well before using this so if you are on the dry
side it is good to keep that in mind. It has SPF 22 and I also got this nice brush with it - it is nice
but I find myself reaching for my Beauty Blender since it's just a personal preference. I have used
the brush for concealer though and it worked really well. I am next going to share with you the
pros and cons of this foundation.


Kostir:
 · Hann er léttur á húðinni
· Hann gefur ljómandi áferð
· Hann hylur mjög vel
· Hægt að byggja hann upp
· Lyktin af honum er góð
· Hann er með pumpu
· Helst vel á yfir daginn

Gallar:
· Ég verð smá olíukennd í
kringum nefið eftir því sem
líður á daginn, nauðsynlegt 
að púðra yfir farðann
·  Þarf að undirbúa húðina vel

Eins og þið sjáið þá eru kostirnir mun fleiri en gallarnir og mér finnst gallarnir í raun og veru
ekkert gallar - þeir pirra mig ekkert rosa mikið. Ég myndi segja að þessi farði er kominn í top
3 af uppáhalds förðunum mínum og er ég virkilega hrifin af honum - ég mæli sko heldur betur
með ♡


Pros:
 · Feels light on the skin
· Gives a glowy finish
· Covers really nicely
· You can build it up
· Smells nice
· Has a pump
· Stays on all day

Cons:
· I get kind of oily
around the nose after
wearing it all day
· Have to prep my skin

As you can see the pros definitely outweigh the cons and to be honest, the cons really don't
bother me. I can say that this foundation is in my top 3 of favourite foundations and I am
really impressed - I recommend it ♡
Vörurnar í þessari færslu voru sendar sem sýnishorn.

Um daginn fékk ég smá pakka fra Sóley Organics og sprakk ég gjörsamlega úr spenningi þegar ég
sá allar girnilegu vörurnar sem voru í honum. Ég hef lengi verið mjög hrifin af merkinu, enda er
uppáhalds rakakremið mitt og andlitsskrúbburinn í öllum heiminum frá Sóley. Ég var því mjööög
spennt að prófa fleiri vörur frá merkinu og ætla ég að deila með ykkur í dag þremur vörum sem ég
hef verið að nota seinustu þrjár vikur. Allar vörurnar frá Sóley eru lífrænt vottaðar og gerðar úr 
hreinni íslenskri náttúru ♡




The other day I got a package from Sóley Organics, which is an Icelandic brand, and I was so
excited when I saw all the amazing products. I have been a big fan of the products from Sóley
for a long time, my favourite moisturiser and exfoliator in the whole world is from them. I was
so excited to try some more products from them and today I am going to share with you three
products that I have been using every day fort the past three weeks. All of the products from 
Sóley are organic and made from pure Icelandic herbs ♡


Hér eru þær þrjár vörur sem ég hef verið að nota á hverjum degi seinustu þrjár vikur - nema maskann,
hann nota ég einu sinni til tvisvar sinnum í viku. Ég nota líka skrúbb frá merkinu í sturtunni tvisvar
í viku, en hann heitir glóEY og er æðislegur. 

hrein: Fyrsta varan, hrein, er andlitsmjólk. Ég nota hana bæði morgna og kvölds til að hreinsa farða
af og þrífa húðina vel. Ég ber hana á þurra húðina og nudda henni á bæði andlit og háls. Hún er strax
orðin nýja uppáhalds hreinsivaran mín en hún nær að þrífa húðina mjög vel og gerir hana svo alveg
silkimjúka. Hreinsimjólkin er stútfull af andoxunarefnum og inniheldur hún meðal annars kókosolíu,
kvöldvorrósarolíu og villtar íslenskar jurtir - það er mælt með henni fyrir þurra og viðkvæma húð, 
hún er því fullkomin fyrir mig.

steinEY: Næsta vara er maski, sem ég nota nokkrum sinnum í viku. Þessi maski er algjör snilld
og er hægt að líkja honum við Supermud maskann frá Glamglow, sem er í miklu uppáhaldi hjá
mér. Þessi maski jafnar húðina, styrkir vefi og dregur úr áhrifum öldrunar ásamt því að hreinsa
dauðar húðfrumur og fleiri óhreinindi. Maskinn inniheldur eldfjallaösku frá Eyjafjallajökli og
villtar íslenskar jurtir. Ég blanda smá af maskanum við vatn og ber hann á andlitið - þetta er
svona maski sem þornar á andlitinu og maður getur varla hreyft sig, en það er svo þess virði.
Húðin verður svo góð eftir á - bæði hrein og mjúk.

eyGLÓ: Seinasta varan er vara sem ég hef notað áður, og vá - þetta er besta rakakrem sem 
ég hef nokkurn tíman notað. Kremið inniheldur helling af andoxunarefnum sem kallar fram
ljóma ásamt kvöldvorrósarolíu, kókosolíu og villtum íslenskum jurtum. Húðin mín fær bæði
nauðsynlegan raka og svo ljómar hún - húðin verður það góð að ég get notað bara kremið og
ekkert meira. Kremið hentar öllum húðgerðum, sem er æðislegt.



Here are the three products that I have been using both morning and evening for the past
three weeks, if you are interested in reading about them use Google Translate for the text
above. These are seriously among the best products I have ever tried!
Blogger Template Created by pipdig