Ef ég væri beðin um að lýsa hinum fullkomna mánudegi þá væri það dagurinn minn í dag - vont
veður úti, ég í fríi og get legið heima upp í sófa í allan dag! Það er einmitt sem ég er búin að gera
í allan dag og ég get ekki kvartað - ég er meðal annars búin að liggja yfir Pinterest að safna smá
innblæstri fyrir haustið og veturinn en eins og þið vitið þá er þetta uppáhalds tími ársins hjá mér.
Ég elska að klæðast þykkum prjónapeysum, kápum, treflum og öklaskóm - það getur verið frekar
hættulegt fyrir veskið en ég sótti meðal annars þessa fullkomnu peysu frá Asos á pósthúsið í dag
og pantaði mér þessa kápu fyrir nokkrum mínútum. 

Nú ætla ég að henda mér í það að pakka en ég er á leiðinni til New York á morgun - ég kvarta
ekki yfir því en þessi borg klikkar aldrei! Mikið hlakkar mig til 


If you would ask me to describe my perfect Monday it would be my day today - a storm
outside, I have the day off and have been on the couch all day long! That is exactly what
I have been doing today and I can't complain - I was stuck on Pinterest for a while among
other things and got so inspired for fall/winter fashion. As you know this is my favourite
time of the year - I love thick knitted sweaters, coats, scarfs ad ankle boots. That can be
a bit dangerous as I just picked up this sweater from Asos and a couple of minutes ago I
ordered this coat which is perfect for the winter.

Now I have to go pack as I am going to New York tomorrow - I can't complain since I
love the city and can't wait to be back 

Um daginn kom Níels með hugmynd varðandi heimilið og ég var ekki lengi að skjóta henni niður. Ég
skildi ekkert hvað hann væri að pæla og fannst hugmyndin alveg fáranleg - þangað til núna! Það eru 
semsagt tvö svefnherbergi í íbúðinni okkar og þegar við fluttum inn í lok árs 2013 vildum við nota
minna herbergið sem svefnherbergið okkar og Níels fékk að hafa tölvuna sína og allar græjur í því
stærra. Mér fannst minna herbergið mun notalegra og vildi frekar hafa það sem svefnherbergi en hitt,
það er svo líka öðruvísi parket í því stærra en er í restinni af íbúðinni (já, það pirrar mig á hverjum
einasta degi takk kærlega fyrir). Hugmyndin hans Níelsar var semsagt sú að skipta um herbergi, að
við myndum nota stærra herbergið sem svefnherbergi og að hann myndi hafa "mancave-ið" sitt í
því minna. Allt í einu fannst mér þetta snilldarhugmynd og nú er ég alveg harðákveðin í að svissa
um leið og ég hef tíma til. Ég er alveg með það fast í huganum hvernig ég vill hafa herbergið en
ég vil hafa það allt hvítt (s.s. veggi og gardínur) en gera það aðeins hlýrra og notalegra með gráum
og svörtum aukahlutum og grænum plöntum.

Ég mun að sjálfsögðu vera dugleg að deila með ykkur breytingunum á Snapchat en þið finnið mig
þar undir @alexsandrabernh. Ég mun svo deila með ykkur hér á blogginu myndum af baðherberginu
okkar bráðlega en eins og þið vitið eflaust þá tókum við það í gegn alveg frá A-Ö. Það á ennþá eftir 
að klára nokkra hluti en mikið hlakkar mig til að sýna ykkur það - það er svo fallegt 


The other day Níels came up with an idea for our home and it didn't take me a long time to say
no, poor thing. Our apartment has two bedrooms, we decided when we moved in to take the
smaller one and make that into our bedroom and use the bigger one as Níels's office/man cave.
His idea was to switch rooms, make the bigger one our bedroom and the smaller one his room.
I was so not on board at first but now I really want to switch - I love making changes to our
home and this one I am really excited about. I have an idea on how I want the room to look
like - I want white walls and curtains but I am going to use black and grey details to make it
a bit more cozy and warm. 

I will of course be documenting the entire process on my Snapchat and you can find me there
under @alexsandrabernh. I will then be sharing with you guys pictures of our bathroom here
on the blog soon - we have some small things left to do but then it is ready 

Halló allir saman og gleðilegan sunnudag - ég fæ loksins heilan frídag alveg fyrir mig sjálfa eftir 16
daga af vinnu og skóla! Ég ætla að njóta dagsins í botn á náttfötunum og horfa á Orange Is The New
Black, en ég er dottinn inn í þá aftur á Netflix. Ég sendi BS ritgerðina mína til leiðbeinanda fyrir helgi
og er hún næstum klár - yndislega frænka mín er að prófarkalesa hana og svo er hún bara tilbúin. Það
er svo skrýtin tilfinning að vera að klára grunnámið núna, smá svona ,,bittersweet" en það verður bara
gaman að byrja á næsta kafla, hvað sem það verður. 

Annars erum við að fara að byrja á smá framkvæmdum hér heima við á næstu dögum - teikningarnar
fyrir baðheberginu eru komnar og við erum að velja flísar, blöndunartæki og alls konar skemmtilega
hluti. Ég ætla auðvitað að deila ferlinu með ykkur hér á blogginu og sýni ykkur fyrir og eftir myndir,
ég er svo ótrúlega spennt fyrir þessu öllu. Þegar maður byrjar á eitthverju einu, þá langar manni ekki 
að hætta og mig langar svo að breyta fleiru hér heima við. Hér er smá heimilisinnblástur sem ég er að
elska í augnablikinu - mig dreymir um hvít gólf, grá rúmföt og hringlótt eldhúsborð 



Hello everyone and happy Sunday - finally I have a whole day off to do nothing but this is the first
day all month that I have off from both work and school! I am going to enjoy it by spending all day
in my pyjamas watching Orange Is The New Black on Netflix. I sent my teacher my BS thesis on
Friday so it is almost done - my aunt is reading over it now and then I can hand it in. It feels so
weird to be done and to be finishing my bachelor degree, it is kind of bittersweet but I am so
excited for the next chapter of my life.

Anyways, we are soon starting redecorating our bathroom. We are going to take everything out - the
bathtub, tiles.. everything and start all over again. We went yesterday to look at some new tiles for
the walls, some sinks and more - I will of course share the entire process with you here on the blog
and show you before and after photos. I always feel when I start one thing, I can't stop so I am 
wanting to change more things at home. Here is some of my interior inspiration at the moment - I
am dreaming of white floors, grey sheets and a round kitchen table 

Þegar ég fæ flugu í hausinn, þá fer hún ekki fyrr en ég geri eitthvað í málunum - um helgina fórum
við í afmæliskaffi til frænda míns sem býr í gullfallegri íbúð með útsýni yfir Nauthólsvíkina og eftir
heimsóknina var ég full af innblástri og langaði að breyta aðeins til hjá okkur. Mig er lengi búið að
langa að breyta veggnum þar sem sjónvarpið okkar er en ég er komin með ógeð af honum - það sem
mig langar að gera er að kaupa aðra Besta hillu úr Ikea og setja hana á vegginn en mig langar ekki 
lengur í alveg hvíta heldur eikarlitaða með hvítum háglans hurðum. Já ykkur er ekki að dreyma, mig
langar aðeins að bætta inn viðarlituðu frekar en að hafa allt hvítt. Frændi minn er einmitt með þannig
og það kemur svo vel út. Mig langar að hengja hilluna á vegginn og sjónvarpið fyrir ofan - en það er
ekki allt saman. Mig langar líka í nýtt eldhúsborð og Eames stóla, þessa hvítu með viðarfótunum
eins og eru á myndunum hér fyrir ofan. 

Ahh, ég verð að láta verða að þessu í sumar - ég þrái smá breytingu. Á morgun ætla ég að deila
með ykkur núverandi óskalistanum mínum fyrir heimilið og þá sjáið þið betur hugmyndina sem
ég er með í hausnum. Þangað til næst, knús 



When I get an idea, it doesn't go away until I do it - this weekend we went to my uncles house to
celebrate his birthday and I got so inspired. He lives in the most gorgeous apartment with such a
beautiful view over Nauthólsvík and when I came home I had so many ideas on what I wanted to
do with our place. For the longest time I have been wanting to change the wall where our TV is,
I am so over it. I want to buy another Besta shelf from Ikea and hang it on the wall and the TV
above it but I don't want an all white one like I already have in the hallway. I really want an oak
one with white doors, it looks so good together. Then I also want a new kitchen table and the
white Eames chairs with the wooden legs.

Ah, I think I have to do it this summer - I am really craving a little change. Tomorrow I am
going to share with you the items that I currently have on my wishlist for the home and you
can see the idea I have in mind. Until the next time, hugs 

Seinustu vikur hef ég aðeins verið að hugsa um heimilið og þær breytingar sem mig langar að gera 
þar. Verandi námsmaður í augnablikinu er ekki alveg til peningur til þess að gera eitthverjar stórar
breytingar en það er alltaf hægt að breyta smá, stundum gerir það svo mikið. Eins og þið vitið, ef þið
hafið verið að fylgjast með mér lengi, þá er einn veggur í svefnherberginu okkar grár. Mér finnst það
gera herbergið aðeins hlýlegra og kósý - mig langar núna rosalega mikið að kaupa dökkgrá rúmföt
og blanda þeim við hvíta eða fölbleika kodda, ég held að það verði sjúklega flott og kósý 

Annars er ég komin í smá helgarfrí frá blogginu, það gæti mögulega verið að ég geti sett inn 
eina eða tvær færslur en ég er frekar upptekin þessa helgi - á morgun eftir skóla fer ég á fund
og svo í neglur, á laugardaginn er besta vinkona mín að útskrifast og sunnudagurinn verður
algjör kósý dagur sem endar á tvöföldum þætti af Ófærð, ég er svo spennt! Hafið það gott og
munið að það er konudagurinn á sunnudaginn - þetta var smá leynihint ef Níels kærastinn
minn er að lesa bloggið haha! 


For the last few weeks I have really been craving to make some changes to our apartment. Since I
am a full time university student I really can't afford making some drastic changes at the moment so
I though about making some small changes. Something small can really change up an entire room.
If you have been following me for a while, you may know that one wall in our bedroom is grey - I
absolutely love it, it makes everything so much more cozy. I have been wanting to to get dark grey
bed wear and pair them with either white or pale pink pillows, really love that combo 

The next couple of days are kind of packed for me so I may not blog at all this weekend - I will
just have to see if I have time. Tomorrow after school I have a meeting and then I am going to get
my nails done. On Saturday my best friend is graduating University so we are going to celebrate
that and on Sunday I am going to have a lazy day at my mom's. I hope you have a good weekend!

Góðan dag yndi - ég veit að þið eruð öll hress með að það er kominn föstudagur! Ég er búin að liggja
heima þessa viku með hundleiðinlega magapest og því ekki búin að ná að gera eins mikið og mig 
langaði. Ég ætlaði að vera rosa dugleg að vinna í BS ritgerðinni og taka myndir fyrir bloggið en það
verður bara að bíða þangað til í næstu viku. Janúar var mjög vinsæll mánuður á blogginu og var mjög
gaman að sjá heimsóknarfjöldann rísa upp - það hvetur mig bara til þess að halda áfram og gera enn
betur. Á næstu dögum ætla ég að deila með ykkur nokkrum nýjum flíkum í fataskápnum mínum, 
nýjum uppáhalds snyrtivörum, uppáhalds dressinu mínu sem ég er búin að klæðast endalaust og
svo ætla ég einnig að deila með ykkur uppáhalds bloggurunum mínum. Það sem er búið að hjálpa
mér mikið upp á síðkastið er Pinterest en ef mig vantar innblástur, þá þarf ég ekki að leita langt.
HÉR finnið þig mig á Pinterest ef þið viljið fylgja mér.

Eigið góða helgi - ég er með gjörsamlega ekkert planað og ég elska það.
Þá er bara að hafa það notalegt og slaka aðeins á. Knús 


Good morning loves - I know you are as happy as me that it is Friday! I have been sick at home
with a stomach bug all week and haven't been able to do as much this week as I wanted to. I was
planning on working on my BS thesis and take some photos for the blog but that has to wait until
next week. January was a big month here on the blog and I loved to see the increase in page views.
It just motivates me to keep going and do even better so thank you guys for reading. In the next days
I am planning on sharing with you some new items in my closet, some new beauty favourites, one of
my go to outfits these days and my favourite bloggers. What has helped me a lot these last weeks 
when I need inspiration is Pinterest, absolutely hooked on it. You can find me there HERE.

I hope you all have a good weekend - I have absolutely nothing planned which I
love. Gives me some time to relax and enjoy. Hugs 
PICTURES TAKEN FROM PASSIONSFORFASHION.DK

Það gerðist eitthvað innra með mér þegar ég sá þessar myndir um daginn á blogginu hennar Christinu
Dueholm en hún hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds Skandinavísku bloggurum. Hún keypti 
sér nýlega íbúð í Kaupmannahöfn og þar sem svefnherbergið var býsna stórt, gerði hún þennan walk
in closet. Hann er gullfallegur og ég elska gluggann á milli - mjög skemmtileg tilbreyting! Öll íbúðin
hennar er reyndar draumur og fæ ég alltaf sjúklegan innblástur þegar ég skoða færslurnar hennar.

Það er alveg á hreinu að þegar við kaupum okkur íbúð á næstu árum þá ætla ég að gera eitthvað í
líkingu við þetta - verst að svefnherbergið okkar núna er of lítið fyrir svona! Ég væri mætt neflilega
með mælibandið núna og byrjuð að plana x


Something happened deep inside when I saw these pictures the other day on Christina Dueholm's
blog but she has been one of my all time favourite Scandinavian bloggers for a long time. Recently
she bought an apartment in Copenhagen and has been renovating it and this is what she did to the
bedroom. I absolutely love the walk in closet and the window - such a nice twist! I always get so
inspired when looking at her blog since her apartment is amazing and he has such a good sense of
style. Recommend checking her out!

This is something that I would love to do when we buy an apartment in the near future, we own the
one that we live in now but our bedroom is way to small for something like this - it's a shame since 
if we had room I would be there right now with a measuring tape starting the process x






IMAGES FROM PINTEREST.

Góðan dag - þið takið eflaust eftir eitthverjum breytingu hér á blogginu en mér fannst vera kominn
tími á að breyta til og gera nýtt look. Ég er mjög ánægð með breytinguna en það tekur auðvitað smá
tíma að venjast. Upp á síðkastið hef ég haft voða lítinn innblástur og hefur það alltaf áhrif á bloggið.
Það fylgir bara þessum tíma ársins finnst mér - veðrið er skrýtið, aðra mínútuna er grenandi rigning 
og hina mínútuna er glampandi sól. Það ruglar mig alveg þegar það kemur að fatavali á morgnanna
en þessar myndir fyrir ofan veita mér vel þeginn innblástur. Það sem ég er hrifin af fyrir haustið eru
klassískir litir, þykkar peysur og einfaldleiki - það er ekkert betra.

Í næstu viku er svo ferðinni haldið til Parísar en ég er alveg viss um að mig mun ekki skorta
innblástur þar - ég er svo spennt að upplifa borgina. Ef þið eruð með eitthver góð tips um hvað
á að gera, hvar á að versla og borða - endilega deilið þeim með mér í athugasemdunum. Eigið
góðan dag, knús x

 ___________________________________________


Good morning - you may notice some changes on the blog but I felt like it was time for a
new look. I am very happy with the change but it takes a while to get used to. Lately I have
been feeling very uninspired and that always affects the blog. I feel like it just comes hand
in hand with this time of year - the weather is so weird, one minute it is pouring rain and 
the next it is sunny and nice. I don't know how to dress in the morning but these pictures
give me some inspiration. What I am loving for fall are classic colours, thick sweaters and
simplicity - there is nothing better.

Next week I am going to Paris so I am sure that I will be super inspired there - I am so
excited to go and see the city. If you have any good tips on what to see, where to shop 
and where to eat let me know in the comments. Have a good day, hugs x



Blogger Template Created by pipdig