Þessi færsla er ekki kostuð // Vörurnar keypti ég mér sjálf.

Einmitt þegar ég var búin að ákveða að haga mér vel þegar kæmi að fatakaupum þá ákveða þau hjá
Missguided að setja 50% afslátt á ALLT á síðunni - já, ég sagði allt! Ég var stödd í stuttu stoppi í
Glasgow þegar systir mín sendir mér þetta og ég var ekki lengi að skella þremur hlutum sem voru
á óskalistanum mínum í körfuna og nú eru þeir á leiðinni til mín! Ég hefði getað pantað mér miklu
fleiri hluti en ég ákvað að vera stillt og fékk mér tvenn pils og eina síða prjónaða peysu. Afsláttrinn
gildir ekki lengur en með kóðanum "heyfall" færðu 35% afslátt, það er nú ekki slæmt!

Nú ætla ég að slaka aðeins á í sófanum áður en ég fer í kvöld/næturflug í vinnunni - hafið það
gott ♡

MISSGUIDED jumper dress (fæst HÉR)     MISSGUIDED black wrap skirt (fæst HÉR)     MISSGUIDED pink wrap 
skirt (fæst HÉR)


Right when I decided to behave when it came to shopping Missguided had a 50% off sale
on everything last Monday - yes, I said on everything! I of course had to make a little order
and had to get these three things that were on my wishlist. I could have gotten so much more
but I decided to be good and just got two skirts and a comfy knitted sweater. They don't have
the discount anymore but when you use the code "heyfall" you get 35% off your order, now 
that's not bad!

Now it's time to rest a bit on the couch before heading to work - take care ♡

Þegar maður byrjar þá getur maður ekki hætt - ég pantaði mér smá af Asos og Missguided í seinustu
viku og svo aftur í gær haha! Ég var ekki búin að panta mér neitt af netinu í yfir tvo mánuði svo ég
átti smá inni en ég pantaði mér þessa þrjár flíkur af Missguided - fyrsta sem ég setti í körfuna var 
þessi hvíta "cropped" peysa en hún er fullkomin við kósýbuxurnar sem ég pantaði mér líka og svo
hvíta strigaskó, já takk. Ég fékk mér líka svo þessa hvítu skyrtu en hún er einmitt fullkomin fyrir
sumarið - létt og þægileg yfir gallabuxur og flottan blúndutopp! 

MISSGUIDED cropped sweatshirt (HÉR)     MISSGUIDED joggers (HÉR)     MISSGUIDED shirt dress (HÉR)


When I start, I can't stop haha - last week I made an order with both Asos and Missguided and
last night I made two more, oops! I hadn't ordered anything online for about two months so I
decided that I could splurge a little bit but I ordered three items from Missguided - the first thing
I ordered was this white cropped sweatshirt that will be perfect with the joggers I also got and
white sneakers, yes please. I also got this white shirt dress which would be perfect this summer
over black jeans and over a black lace bra! 

MISSGUIDED cropped sweatshirt (HERE)     MISSGUIDED joggers (HERE)     MISSGUIDED shirt dress (HERE)


Ég pantaði mér svo auðvitað smá af Asos líka en mig langar í gjörsamlega allt þar - ég lét tvo hluti
duga í þetta skipti en ég er að bíða eftir að þessi jakki komi aftur, þá ætla ég að næla mér í hann.
Ég fékk mér þennan topp sem ég er ótrúlega skotin í og þennan samfesting sem mig er búið að
langa að eignast í nokkrar vikur núna - hann er örugglega það þægilegasta sem til er, fullkomið
fyrir mig! 

ASOS bomber jacket (HÉR)     WEEKDAY brienne triangle bra (HÉR)     BOOHOO jumpsuit (HÉR)


I also ordered a couple of things from Asos but there are so many things there that I want - I
ordered two items this time and then I am waiting for this bomber jacket to come back in stock
so I can make it mine, it is so nice! I ordered this bra and this jumpsuit which I have been craving
now for a few weeks - it looks so comfortable, just what I love! 

ASOS bomber jacket (HERE)     WEEKDAY brienne tringle bra (HERE)     BOOHOO jumpsuit (HERE)

Þessi færsla er ekki kostuð // Kjólinn keypti ég mér sjálf.

Um daginn tók ég smá rúnt í gegnum nokkrar vefverslanir þar sem ég er að leita mér að kjól eða
samfestingi fyrir útskriftina mína í næsta mánuði - auðvitað fann ég mér ekkert fyrir útskriftina
en ég náði að finna mér eitthvað sem mig vantaði alls ekki, er það ekki alltaf þannig? Eitt af því
sem ég pantaði mér var þessi gullfallegi kjóll frá Missguided - ég gjörsamlega dó þegar ég sá hann!
Liturinn, sniðið og efnið - fullkominn! Ég er reyndar ekki mikið fyrir flegna kjóla en þessi er algjör
undantekning og sé ég hann fyrir mér við svartann blúndutopp, lausar krullur og choker hálsmen í
sumar. Já takk! 

Annars vaknaði ég eldsnemma í morgun og tók á móti iðnaðarmanni sem er að flísaleggja bæði
veggi og gólf inn á baðherbergi - það er allt að smella saman loksins og ég er svo spennt að sýna
ykkur lokaútkomuna. Ég verð að viðurkenna að ég er alveg komin með nóg af öllu draslinu sem
fylgir þessu og er kvíðinn minn alveg í hámarki - mig án djóks dreymir um þann dag sem ég get
þrifið alla íbúðina súper vel, það er ekkert betra en að hafa allt hreint og skipulagt í kringum sig.
Við heyrumst á föstudaginn, ég er á leiðinni til Boston á morgun og hlakka mjög til - ein af mínum
uppáhalds borgum í Bandaríkjunum! Þangað til næst ♡

Kjóllinn er frá Missguided // Hann fæst HÉR í gulu og HÉR í svörtu.


The other day I browsed every single webshop to find a dress or a jumpsuit for my graduation 
next month - of course I didn't find anything but I did manage to find some stuff that I didn't
need haha, it's always like that! One of the items that I ordered is this gorgeous yellow dress
from Missguided - the minute I saw it I died! I love the colour, the cut and the fabric - it is so
perfect for the summer! Even though I am not a big fan of low cut dresses I love this one and
will be wearing it with a black lace top, loose curs and a choker. Yes please!

Anyways, I woke up early this morning to greet the contractor who is putting up tile in our
bathroom - things are finally happening and I am so excited to share it with you when it is
all done. I have to admit that I am really sick of all the mess and tools that are lying around
and my anxiety is quite bad, I just can't function in this kind of mess. I am so excited when 
all of this is done and I can just get one whole day to myself and clean the whole apartment
super well! Tomorrow I am heading to Boston for 24 hours, so talk soon ♡

The dress is from Missguided // You can buy it HERE in yellow and HERE in black.

Ví - hann er kominn! Ég bloggaði um þennan fallega "bomber" jakka í seinustu viku (HÉR) og hann
kom loksins í gær. Ég er ekkert smá ánægð með hann og veit að hann verður mikið notaður þegar það
byrjar aðeins að hlýna. Svona jakkar eru svo fallegir og mæli ég heldur betur með þessum - hann er 
til í þessum græna lit og svo í svörtu líka. Hann er fullkominn yfir oversized peysu, leggings og hvíta
strigaskó - já takk ♡

Jakkinn er frá Missguided og kostar 40 pund sem eru um 7.400 krónur.
Hann fæst HÉR í grænu og HÉR í svörtu.




Yay - it is finally here! I talked about this bomber jacket on the blog last week (HERE) and it 
arrived yesterday. I am super happy with it and I am sure that I will use it a lot when it gets a
bit warmer here in Iceland. I love these kinds of jackets and really recommend this one - it is
available in this khaki colour and in black. It would be perfect over an oversized top, leggings
and some sneakers - yes please ♡

The jacket is from Missguided and costs 40 pounds.
You can find it HERE in khaki and HERE in black. 
ASOS maxi military coat (HERE)     ASOS body con midi dress (HERE)     ASOS chunky jumper (HERE)
ASOS high neck dress (HERE)     ASOS oversized scarf (HERE)     NAANAA lace up front dress (HERE)

Eins og þið vitið eflaust þá elska ég að versla á netinu - ég fæ rosalega margar spurningar um hvar 
mér finnst best að versla, hvað ég þarf að borga mikinn í toll og þess háttar. Ég ákvað að skella bara
í eina færslu þar sem ég deili með ykkur því sem er á óskalistanum hjá mér í augnablikinu frá tveimur
verslunum sem ég panta mikið hjá og hvernig það er að panta þaðan.

ASOS // Byrjum á uppáhaldinu mínu, en það er Asos. Ég panta mjög mikið þaðan og er alltaf 
mjög ánægð. Það eru mjög mörg merki þarna inn á svo allir ættu að finna sér eitthvað - það er
hægt að panta sér föt, skó, töskur, aukahluti og jafnvel snyrtivörur. Ég panta voða mikið frá
Asos merkinu sjálfu en svo er hægt að finna önnur merki eins og Missguided, Boohoo og River
Island. Það er frí sending ef þú pantar fyrir meira en $40, annars kostar hún eitthvað smotterí.
Þegar þú pantar þá sérðu hvenær von er á sendingunni (elska það!) og tekur hún um 7-10 daga
að koma. Ég þarf alltaf að borga toll af sendingunni, en hægt er að reikna hversu hár hann er
inn á heimasíðu Tollsins. Eftir áramót verður tollur á fatnað og skó afnuminn svo það eru
mjög góðar fréttir fyrir ykkur sem pantið mikið erlendis, ég er allavegana mjög ánægð með
það þar sem mér finnst ég borga alltaf mjög háa upphæð í toll. Þetta eru þær vörur sem eru
ofarlega á óskalistanum mínum frá Asos í augnablikinu (ég er með minn eigin aðgang þar og
nota Saved Items mikið, þar geymi ég allt sem mig langar í - þæginlegt að geyma það allt á
einum stað) og ætla ég að panta mér hvítu peysuna og gráa kjólinn efst á næstu dögum.
Smelltu HÉR til að versla á Asos.

MISSGUIDED turtle neck (HERE)     MISSGUIDED pyjama shirt (HERE)     MISSGUIDED khaki bomber (HERE)
MISSGUIDED velvet dress (HERE)     MISSGUIDED black bomber (HERE)     MISSGUIDED pyjama set (HERE)

MISSGUIDED // Hin verslunin sem ég nota mikið er Missguided. Þar er að finna mjög gott
úrval af fallegum kjólum og fötum. Ég hef aldrei borgað fyrir sendingu þar sem hún er frí og
það tekur pöntunina vanalega rúma viku að koma. Ég borga líka alltaf toll þegar ég panta af
Missguided en hann mun auðvitað lækka vegna afnámsins. Eina sem mér finnst leiðinlegt við
að panta af Missguided er að sendingin kemur ekki á pósthús eins og Asos sendingarnar heldur
notar Missguided DHL til að senda. Það þýðir að DHL mun hringja þegar sendingin er komin
og koma með hana heim. Það hljómar kannski vel en þau hringja alltaf á verstu tímum þegar
enginn er heima og það kostar aðeins meira ef sendingin kemur frá þeim. Mér finnst þæginlegra
að hafa þann kost að sækja pakkann minn á pósthúsið þegar mér hentar. Hér fyrir ofan eru
nokkrar flíkur sem mig langar í en ég er að pæla að panta mér svarta jakkann og náttfötin.
Smelltu HÉR til að versla á Missguided.

Ég vona að þetta hafi hjálpað ykkur aðeins, en ef eitthvað er óljóst endilega spurjið þá í
commentum! Stærðirnar hjá báðum verslunum eru venjulegar en það fer eftir merkjum hjá
Asos - til að bera saman nota ég UK 8/10 í báðum verslunum. Það fer eftir því hvað ég er að
panta hvaða stærð ég tek, til dæmis ef ég er að panta mér peysu þá tek ég UK 10 til að hafa
hana aðeins stærri og ef ég er að panta mér kjól þá tek ég UK 8.


I wanted to share some of my current wishes from two of my all time favorite online
stores that I use a lot, Asos and Missguided. I put together some items that I am craving
and wrote some if my online shopping tips when it comes to ordering to Iceland (we 
have to pay tax and vat..). If you are interested you can use Google Translate. I am
thinking about ordering the grey dress and the white sweater from Asos and the
black jacket, red dress and pyjamas from Missguided. Hugs x



Blogger Template Created by pipdig