CLINIQUE redness solution soothing cleanser - naturally gentle eye makeup remover - mild clarifying lotion

Húðumhirða er mér mjög mikilvæg og þess vegna langar mig að deila með ykkur þeim vörum
sem ég er að nota í augnablikinu. Ég hef prófað margar vörur frá mörgun mismunandi merkjum
en vörurnar frá Clinique hafa alltaf reynst mér mjög vel. Ég er með frekar viðkvæma og þurra 
húð og legg mikla áherslu á að hugsa vel um hana. Þessar þrjár vörur frá Clinique eru orðnar
uppáhalds vörurnar mínar þegar það kemur að húðumhirðu í augnablikinu. Ég ætla að fara með
ykkur í gegnum rútínuna mína:

1. Ég byrja á því að hreinsa yfirborð húðarinnar með hreinsivatni frá Garnier.

2. Næst tek ég af augnfarðann með Naturally Gentle Eye Makeup Remover.
Þessi vara er æðisleg og pirrar ekki augun mín eins og margir hreinsar gera,
ég nudda vörunni yfir augun og skola með vatni. Hann hreinsar mjög vel
og ég næ öllu af mér með einni umferð. 

3. Næst þríf ég húðina með Soothing Cleanser úr Redness Solution línunni. 
Þessi hreinsir hentar mér mjög vel þar sem ég er þurr og á það til að verða
smá rauð í kringum nef og munn. 

4. Næst set ég Mild Clarifying Lotion í bómul og fer yfir andlitið. Þessi vara
skrúbbar andlitið létt og tekur allar dauðu húðfrumurnar í burtu ásamt því að
gera húðina silkimjúka.

5. Seinasta skrefið er að setja gott rakakrem á mig, ég er að nota Ultra Repair
Cream frá First Aid Beauty.

Ég byrjaði að nota þessar vörur í vetur og björguðu þær húðinni minni, enda verður hún
mjög leiðinleg og þurr í kuldanum. Það er líka kostur að vörurnar frá Clinique eru allar
ofnæmisprófaðar og ættu því að fara vel í alla. Ég mæli með ♥


Today I am talking about my current skin care routines. To read in English, please use
Google Translate. Hugs ♥



KITCHENAID hrímhvít hrærivél (fæst hér)

Halló allir - þá er ég mætt aftur eftir aðeins of langt helgarfrí en ég ákvað að taka mér smá frí frá
blogginu og eyddi helginni með fjölskyldunni minni. Nú er ég hins vegar mætt aftur og já, ég er
ennþá í þessu blessaða jólafríi en ég byrja í skólanum eftir tvo daga og ég er svo spennt. Ég elska
að vera í fríi en heill mánuður er kannski einum of mikið, sérstaklega þegar allir í kringum þig eru
að vinna og þú hangir ein heima allan daginn bíllaus. Ekki það skemmtilegasta!

En yfir í eitthvað aðeins skemmtilegra - ég sýni vanalega ekki jólagjafir hér á blogginu EN ég get
ekki sleppt því að sýna ykkur þessa. Það leyndist frekar stór kassi undir jólatrénu og inn í honum
var draumurinn - hrímhvít KitchenAid með mattri glerskál. Ég man þegar ég sá hana fyrst fyrir 
rúmu ári, og núna er hún mín. Ég er svo þakklát enda er þetta mjög dýr og vegleg gjöf og eitthvað
sem við munum eiga að eilífu. Nú fá allir köku sem koma í heimsókn x


Hello everyone - I am back after a long weekend but I decided to take some time off from the
blog and spent time with my family. Now I am back and yes, I am still on Christmas break but
I start school in two days and I am seriously counting down the days. I love taking some time 
off but a month is just too much for me, especially when everyone around me is working and
I am just home by myself without a car!

Over to something a bit more fun - I normally don't share gifts with you here on the blog BUT I
just have to show you guys this one. During Christmas there was a huge box under the three and
inside was my dream - a pearl white KitchenAid with a matte glass bowl. I remember when I saw
it first about a year ago and I fell in love, now it is mine. I am so grateful as this is an expensive
gift but it is something that we will have forever. Now, everyone who comes over gets a cake x




Um daginn spurði ég á Snapchat (ég er þar undir "alexsandrabernh") hvað ykkur langaði helst að
sjá hér á blogginu. Langflestum langaði að sjá meira af snyrtivörufærslum og ætla ég því að vera
dugleg að birta þær í bland við óskalista, heimilisfærslur og outfit færslur. Ég ætla að byrja á því
að deila með ykkur þeim vörum sem eru efst á óskalistanum mínum í augnablikinu. Ég verð að
viðurkenna að mig vantar ekki neitt enda á ég nóg af snyrtvörum - það er bara svo gaman að prófa
nýjar vörur! Efst á óskalistanum eru stöku augnskuggarnir frá Anastasia Beverly Hills en þeir eru
mjög góðir. Ég á litinn Sienna en langar að bæta nokkrum við safnið ásamt Glow Kit sem var að
koma út. Það styttist svo í að ég komist í Sephora aftur - en bara fjórir mánuðir þar til ég byrja að
vinna aftur! Ég er ekkert smá spennt x

Hafið það gott í kvöld og um helgina - ég er ein heima í kvöld og ætla að hafa það notalegt með
snakk og horfa á Broen (er obsessed, búin með tvær seríur á fjórum dögum!). Um helgina ætla
ég svo að eyða tíma með fjölskyldunni og slaka á áður en skólinn byrjar í lok næstu viku!

P.S. Gettu hver nældi sér í 35o pallettuna frá Morphe í gær? Íík er svo spennt.

The other day I asked on Snapchat (you can find me there under "alexsandrabernh") what you
would like to see more of here on the blog. Most of you wanted to see more beauty posts so I
am going to do more of them as well as wishlists, home posts and outfit posts. Today I wanted
to share with you some beauty products that are on the top of my wishlist at the moment. I do
not need anything - but it is so much fun trying out new products! I am really craving some of
the individual shadows from Anastasia Beverly Hills as well as their new Glow Kit. Soon I 
will be reunited with Sephora as well, oh how I can't wait x

Have a good weekend everyone - I am alone home tonight so I am going to have a cozy
evening with some candy and watch Broen (I am obsessed, finished two seasons in four
days!). Then I am going to spend the weekend relaxing and with my family!



FROM MY INSTAGRAM - BEEN LOVING WEARING MY HAIR LIKE THIS

Góðan dag - ég er alveg ringluð á því hvaða dagur er þar sem ég er ennþá í jólafríi, já ennþá. 
Ég byrja ekki í skólanum fyrr en í lok næstu viku en um helgina byrja ég aðeins að huga að
BS ritgerðinni minni, ég trúi einfaldlega ekki að ég sé að fara að skrifa hana og svo er námið
bara að verða búið. Ótrúlega skrýtið hversu hratt tíminn líður - eitt af markmiðunum mínum
fyrir 2016 var að njóta meira. 

Mig langaði bara aðeins að láta heyra í mér - ég er búin að vera svo löt seinustu daga og í gær
klæddi ég mig einu sinni ekki. Ég er þó aðeins hressari í dag og ætla að nýta daginn vel - ég ætla
að vinna í nokkrum færslum en á næstu dögum mun ég deila með ykkur einni af minni uppáhalds
flíkum í heiminum, make-up óskalistanum mínum og uppáhalds burstunum mínum frá Morphe.
Knús ♥

Good morning - I am so lost on what day it is today since I am still on Christmas break. I don't
start school until the end of next week but this weekend I have to start working on my BS thesis,
I can't believe that I am about to start on that and then I am almost done with University (for now).
So weird how time flies by - one of my goals for 2016 is to enjoy more, which is important since
time goes by so fast.

I just wanted to update you guys a bit - I have been so lazy for the last couple of days and I didn't
even get dressed yesterday. January is always kind of hard for me - it is so dark outside, the weather
sucks and sometimes I just want to sleep all day long. I am feeling better today though and I am
going to work on some posts - in the next couple of days I will be sharing my all time favourite
piece of clothing, my make-up wishlist and my favourite brushes from Morphe.
Hugs ♥


Blogger Template Created by pipdig