Halló halló - mig langar að byrja á því að afsaka hversu léleg ég er búin að vera hér á blogginu
og á Instagram seinustu daga. Það er búið að vera svo mikið að gera þar sem ég byrjaði aftur
sem flugfreyja hjá Icelandair í byrjun mánaðarins og þegar ég er ekki að fljúga þá er ég að læra
eða vinna í BS ritgerðinni minni. Þessi mánuður verður því smá fullur hjá mér en auðvitað mun
ég gera mitt besta að koma með skemmtilegar færslur og umfjallanir fyrir ykkur. Í dag er ég á
leiðinni til Boston og er ég ekkert smá spennt - hún er ein af mínum uppáhalds borgum og það
er alltaf hægt að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Mig langar að minna ykkur á Snapchatið
mitt en ykkur er velkomið að fylgjast með mér þar undir @alexsandrabernh - ég ætla að vera
mjög dugleg þar á meðan ég er úti.
Annars læt ég fylgja nokkrar myndir frá seinustu vikum frá Instagraminu mínu en þið getið
fundið mig þar undir @alexsandrabernhard - njótið helgarinnar ykkar og heyrumst þegar ég
kem heim frá Boston ♡
Hello everyone - I wanted to start by apologising, I haven't been super active here on the blog
or on Instagram lately. I started working again as a cabin crew member at Icelandair this month
and things have been pretty hectic as I am also finishing university at the same time. So when I
am not working I am at school or working on my BS thesis. Even though I am super busy I am
still going to do my very best to share some fun stuff with you guys here on the blog. Today I
am going to Boston and will stay there for one night - I am really excited since Boston is one of
my favourite cities. You can find me on Snapchat under @alexsandrabernh if you want to follow
me around there.
Here are some of my recent Instagram posts but I am there under @alexsandrabernhard - I
hope you all have a wonderful weekend! See you when I get back home from Boston ♡
Post a Comment
Góðan dag - mig langar að byrja á því að þakka ykkur kærlega fyrir góð viðbrögð við outfit
færslunni í gær en hún er strax orðin ein vinsælasta færsla mánaðarins. Ég mun klárlega gera
meira af þessum færslum - hvort sem það er úti eða inni. Ég byrjaði daginn minn á fundi og
er núna heima í rólegheitunum að læra - mig langaði að minna ykkur á Instagramið mitt en
ég er mjög aktív þar. Þið megið endilega fylgjast með mér þar undir @alexsandrabernhard ♡
Good morning - I wanted to start by thank you guys for the good reaction to yesterday's
post but it is already one of the most popular posts this month. I will definitely be doing
more of them since you seem to like them - I want to do them outside but the weather
here in Iceland is just not the best this time a year. I started my day with a meeting and
now I am at home studying - I wanted to remind you guys that you can always follow
me on Instagram. I am quite active there - @alexsandrabernhard ♡
Halló allir saman - þá er ég loksins mætt aftur eftir smá pásu en hún var alveg bráðnauðsynleg! Fyrir
ykkur sem vitið það ekki en þá er ég á þriðja árinu mínu í Viðskiptafræði og það er búið að vera mjög
mikið að gera í skólanum undanfarnar vikur. Ég hef því þurft að setja bloggið mitt í annað sæti sem
mér finnst ótrúlega leiðinlegt en nú eru hlutirnir aðeins að róast svo ég hef loksins aðeins meiri tíma
til þess að blogga með náminu.
Mig langar líka að minna ykkur á að þið getið fylgst með mér bæði á Instagram og á Snapchat en
ég er dugleg þar að deila aðeins meira af persónulegri hlutum og daglega lífi mínu. Þið finnið mig á
Instagram undir @alexsandrab og á Snapchat undir @alexsandrabernh x
Hello everyone - I am finally back after some days off from blogging but I had to take a couple
of days off! For those of you who don't now, I am on my third year at the University of Iceland
learning Business Administration and lately things have been hectic. That is why I had to put the
blog in second place (which I hate!) and focus on my studies 100%. Now things are getting a bit
more comfortable so I have some time to blog along with school.
I wanted to remind you guys that you can follow me on both Instagram and Snapchat but I am
quite active there. You can find me on Instagram under @alexsandrab and on Snapchat under
@alexsandrabernh x
Ein selfie með nýju sólgleraugun mín frá Quay Australia sem fást á
Day Off - í miklu uppáhaldi hjá mér.
Og önnur selfie - þarna er ég í New York á leiðinni heim
eftir vel heppnað stopp þar.
Ég kom heim með smá frá Céline, en í kassanum leyndust
Baby Audrey sólgleraugun - ég bloggaði um þau HÉR.
HOME - þarna glittir í nýju Zöru kápuna mína sem er
strax orðin uppáhalds kápan mín.
Ég kíkti til Seattle en ég hef komið samtals 8x á flugvöllinn þar svo
það var kominn tími til að sjá borgina. Ég rölti á markaðinn fræga og
varð ekki fyrir vonbrigðum.
Ég sé mest eftir því að hafa ekki tekið með mér fersk ber heim, en
það er alltaf næsta skipti.
Ég fór svo aðeins í Barneys að skoða og máta nokkur Céline
gleraugu, þau sem mig langaði í næst (í miðjunni í 3. röð) voru
aðeins of stór fyrir andlitið mitt, svekk ferðarinnar.
Ég tók þó með mér blóm heim frá bóndamarkaðinum, það var smá
bras að koma þeim fyrir í fluginu á leiðinni heim en virkaði!
Ef það væri enn sumar og gott veður myndi ég klæðast þessu
dressi - buxurnar eru nýjar frá Vila og bolurinn er frá Asos.
Er svo skotin í nýju körfunni minni frá Söstrene Grene og nýja
púðanum mínum frá Intería.
Ok, þriðja selfiein í einni færslu, en ok! Þarna var ég á leiðinni á sushidate
með nokkrum yndislegum - ég fór smá út fyrir þægindarammann minn
og var með nýjan varalit frá Too Faced sem heitir Melted Fig. Ég er vön
að vera bara með nude varir, gaman að breyta aðeins til.
Og fjórða og jafnframt seinasta selfie, lofa! Ég tók smá
áhættu og klippti mig stutthærða en ég gjörsamlega
ELSKA hárið á mér núna. Miklu þæginlegra!
Ég kíkti svo til Boston í sólahringstopp, það var yndislegt!
Ég rölti Newbury Street í hitanum og fékk mér gott að borða.
Eftir nokkra rigningadaga kom sólin út og þá stökk ég
út að taka outfit myndir.
Svo var ferðinni heitið til New York í annað sólahringstopp.
Veðrið var æðislegt og ég rölti um borgina með bros á vör
allan tímann!
Fór meðal annars í & Other Stories í Soho og keypti mér
þar yndislegan ullartrefil sem verður mikið notaður í vetur.
Endum þetta svo á nýja gallakjólnum mínum frá Vila sem
ég sagði ykkur frá í seinustu færslu, algjörlega nýtt uppáhald.
Halló halló og gleðilegan laugardag! Ég er í fríi í dag og ætla að njóta þess í botn með því
að vera aðeins í leti áður en ég eyði kvöldinu mínu með fjölskyldunni. Mig langaði að deila
með ykkur nokkrum myndum frá seinustu dögum samkvæmt Instagraminu mínu en það
var nóg um að vera! Ég flakkaði ansi mikið í seinasta mánuði en ég heimsótti Seattle tvisvar
sinnum, svo fór ég til Boston og New York allt í sömu vikunni. Það var erfitt en alveg hreint
yndislegt. Nú verður aðeins rólegra hjá mér en seinasti vinnudagurinn minn er á morgun og
svo er skólinn byrjaður á fullu. Ég er þó frekar spennt fyrir haustinu þar sem ég hef aðeins
meiri tíma þá til að sinna blogginu og taka fallegar myndir - svo er auðvitað mjög spennandi
utanlandsferð að bresta á. Hlakka til að deila því með ykkur, eigið góðan dag x
___________________________________________
Hello and happy Saturday! I have the day off today and am going to be lazy for a while
until I will spend my evening with my family. I wanted to share some pictures with you
from the last couple of weeks from my Instagram. I travelled quite a lot last month but
I went to Seattle twice and then went to Boston and New York all in the same week. It
was kind of hard but so much fun. Now things will be a bit more relaxed since tomorrow
is my last day of work and school is starting. I am really excited for fall since I have more
time to work on the blog and take beautiful pictures - then I am going to France and I am
so excited. Can't wait to share that with you, have a good day everyone x
FALLEGIR LITIR - FANN ÞENNAN KJÓL Í H&M UM DAGINN OG ELSKA
LITINN Á HONUM, ÉG ER EKKI MIKIÐ FYRIR LITI EN ÞESSI ER Í MIKLU
UPPÁHALDI HJÁ MÉR ÁSAMT MOSAGRÆNUM.
ÉG SKRAPP TIL EDMONTON YFIR HELGI UM DAGINN, ÉG VISSI EKKI VIÐ
HVERJU ÉG ÁTTI AÐ BÚAST EN BORGIN KOM MÉR SKEMMTILEGA Á
ÓVART. ÞETTA FALLEGA HÓTEL VAR VIÐ HLIÐINA Á MÍNU OG ER
EKKERT SMÁ FALLEGT.
SUMARDRESS - EITT AF MÍNUM UPPÁHALDS Í SUMAR. ÞAÐ ER SVO
YNDISLEGT AÐ GETA VERIÐ BERLEGGJA Á ÍSLANDI.
EIN NAUÐSYNLEG SPEGLAMYND ÁÐUR EN ÚT ER HALDIÐ.
OK, SEINASTA MYNDIN AF ÞESSU OUTFITI - ÉG LOFA! ÞÚ GETUR
SÉÐ OUTFIT FÆRSLUNA HÉR.
FALLEG BLÓM SEM FEGRA HEIMILIÐ.
OOG NÝJIR SKÓR, NÆLDI MÉR Í ÞESSA Á ÚTSÖLUNNI Í BIANCO.
SKRAPP SVO TIL TORONTO - ÓTRÚLEGA FALLEG OG SKEMMTILEG
BORG. VÆRI ALVEG TIL Í AÐ KÍKJA ÞANGAÐ AFTUR EINN DAGINN.
ÞETTA ER ÚTSÝNIÐ AF HÓTELHERBERGINU MÍNU, EKKI SLÆMT!
GÖMUL MYND FRÁ SEINUSTU NYC FERÐ MEÐ MÖMMU, FYRSTA
HEIMSÓKNIN Í CENTRAL PARK OG EKKI SÚ SEINASTA. ÞAÐ VAR
SVO FALLEGT AÐ SJÁ ALLAR BYGGINGARNAR FRÁ GARÐINUM.
NÝR SPEGILL ÚR SÖSTRENE GRENE FÉKK AÐ KOMA MEÐ MÉR HEIM
UM DAGINN - EFTIR MIKLAR VANGAVELTUR FÉKK HANN AÐ FARA
FYRIR OFAN KOMMÓÐUNA INN Í SVEFNHERBERGI.
Halló - hér er smá myndasprengja frá seinustu dögum. Sumarið er búið að vera of
fljótt að líða og ég trúi því eiginlega ekki að Júlí sé að klárast - það þýðir bara eitt,
það styttist í að sumarvinnan klárist og að skólinn byrjar aftur. Mig langar helst ekki
að hætta að vinna en sem betur fer er bara eitt ár eftir af skólanum hjá mér - alveg
hreint ótrúlegt hvað tíminn líður.
Ykkur er auðvitað velkomið að fylgja mér á Instagram en þið finnið mig þar undir
notendanafninu @alexsandrab - ég verð dugleg þar um helgina þar sem ég er að
fara erlendis. Sama gildir um Snapchat, það er opið fyrir alla og þið finnið mig þar
undir @alexsandrabernh x
_________________________________
Hello everyone - here are some snaps from the last couple of days. Summer has
gone by way to fast and I can't believe that July is almost over - that just means
one thing, one month left of my summer job and school starts again soon. I kind
of don't want the summer to end but I only have one year left of school - it's so
amazing how time flies sometimes.
You are more than welcome to follow me on Instagram but you will find me
there under @alexsandrab - I will post a lot on there this weekend since I am
going abroad. Same goes for Snapchat, I have that open for everyone and you
can find me there under @alexsandraberh x
Subscribe to:
Posts (Atom)

































