Þessi færsla er unnin í samstarfi við Clinique á Íslandi.
Ég elska þegar vörumerki sem ég nota koma með spennandi nýjunga á markaðinn en það er
einmitt sem Clinique gerði nýlega þegar þetta rakagel frá þeim kom út. Ég varð strax mjög
spennt fyrir gelinu en ég er veik fyrir öllu sem á að veita húðinni raka þar sem ég er með
þurra húð og þá sérstaklega á þessum tíma árs þegar það byrjar að kólna úti. Þetta er semsagt
háþróað rakagel sem mögulegt er að nota á marga vegu - það er olíulaust og veitir húðinni
raka í 24 klukkustundir. Það minnir mig ótrúlega á eina af mínum uppáhalds vörum frá Drunk
Elephant, B Hydra Intensive Hydration Serum, og því fullkomið þar sem Drunk Elephant fæst
ekki hér heima að finna eitthvað sem er mjög svipað.
Ég nota gelið á hreina húð bæði á morgnanna og kvöldin. Eftir að ég hreinsa húðina þá set ég
gelið á og er það ótrúlega fljótt að fara inn í húðina. Það situr einnig ekki á húðinni heldur svo
maður er aldrei klístraður sem ég þoli ekki við sumar húðvörur - ég vill að varan fari beint inn
í húðina frekar en að ég finni fyrir henni á andlitinu. Eftir að ég er búin að setja á mig gelið þá
set ég rakakrem á mig en ég hef einnig heyrt að það sé hægt að blanda gelinu við farða og er
það eitthvað sem ég er ótrúlega spennt fyrir en hef þó ekki enn prófað. Það er klárlega næst á
dagskrá hjá mér að blanda gelinu við farða til að fá meiri raka í húðina og til að farðinn ýki ekki
þurru húðina. Þetta er ótrúlega skemmtileg vara sem ég hlakka til að prófa mig áfram með ♡

Post a Comment
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Clinique.
Fröken farðasjúk er mætt aftur að deila með ykkur farða sem ég fékk nýlega og hef verið að
elska. Ég skiptist á að nota nokkra farða en það fer í raun eftir ástandi húðarinnar minnar og
í hvernig skapi ég er þann dag hvaða farða ég nota. Vill ég matta áferð? Vill ég ljómandi húð?
Vill ég létta þekju eða mikla? Farðinn sem ég ætla að segja ykkur frá í dag er frá Clinique og
er hann fullkominn fyrir þá daga sem mig langar aðeins að hafa mig til en á sama tíma vera
mjög náttúruleg og ljómandi. Farðinn heitir Even Better Glow og stendur hann svo sannarlega
undir nafni en hann er ótrúlega léttur farði sem inniheldur C vítamín sem hefur það hlutverk
að birta til og gefa húðinni ótrúlega fallegan ljóma. Mér finnst fullkomið að nota þennan farða
dagsdaglega þar sem þekjan er mjög létt en samt sem áður hylur hann það sem ég vill hylja,
endist ótrúlega vel og gefur húðinni gullfallegann og heilbrigðan ljóma sem er fullkomið fyrir
þreytta mömmu eins og mig núna ♡
Ég nota litinn Bone en ég blanda smá af Natural eða Vanilla
til að fá hinn fullkomna lit þegar ég er með brúnku.

Þessi færsla er ekki kostuð // Stjörnumerktar vörur fékk ég að gjöf.
Um daginn var ég spurð í gegnum Snapchat hvaða farði væri í uppáhaldi hjá mér og fattaði ég þá að
ég á eftir að segja ykkur frá tveimur af mínum uppáhalds förðum sem fá fullt hús stiga hjá mér og
sem ég nota í hvert einasta skipti sem ég mála mig (ég er búin að segja ykkur frá Next to Nothing*
andlitslitnum í þessari færslu). Þeir tveir farðar sem ég hef verið að nota hvað mest og þá sérstaklega
í flugið er Armani Luminous Silk og Clinique Beyond Perfecting*.
Það sem mér finnst best að gera er að blanda förðunum saman en eins og sést á myndunum þá er
Clinique farðinn aðeins dekkri en ég er vön að nota og því fullkomið að nota hann þegar ég er með
brúnku. Armani farðann get ég svo notað þegar ég er ekki með brúnku en ég keypti hann fyrir
nokkrum mánuðum eftir að Þórunn Ívars var endalaust búin að tala vel um hann við mig og vá,
hún hafði sko rétt fyrir sér. Farðinn er ótrúlega léttur, þekur vel en á sama tíma sjást freknurnar
mínar þegar ég er með hann, hann endist vel og gefur húðinni fallega ljómandi áferð. Clinique
farðinn er hins vegar aðeins þykkari og með mikilli þekju - vanalega er það eitthvað sem heillar
mig ekki þar sem ég kýs léttari farða en það er eitthvað við þennan. Húðin verður svo falleg og
hann endist líka allan daginn sem mér finnst vera kostur í fluginu. Þar sem þetta er 2-in-1 farði
þá nota ég ekki hyljara með honum enda ekki þörf fyrir það né þarf ég að setja hann með púðri.
Hann er ekki eins mattur og ég bjóst við að hann væri sem mér finnst vera kostur en húðin verður
bara eitthvað svo fullkomin og "airbrushed" þegar ég er með hann en hann er samt ekki þungur á
húðinni. Ég þarf hann helst í aðeins ljósari lit svo ég get notað hann þegar ég er ekki með brúnku
líka - mæli svo með ♡
Clinique Beyond Perfecting farðinn er í lit nr. 2 og fæst í verslunum Hagkaupa, Next to Nothing andlitsliturinn er í
litnum Light og fæst í MAC Smáralind og Armani Luminous Silk farðinn er í litnum 3.75 og fæst í Sephora HÉR og
á Nordstrom sem sendir til Íslands HÉR.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Clinique á Íslandi.
Það er ansi langt síðan að ég birti umfjöllun hér á blogginu en ég er ótrúlega spennt að segja ykkur
aðeins frá nokkrum nýjum vörum frá Clinique sem ég er orðin ástfangin af - ég er búin að vera að
nota Chubby in the Nude farðann frá Clinique nú í nokkrar vikur og guð minn góður, afhverju er ég
ekki löngu byrjuð að nota svona "stick" farða?! Ég var smá smeyk að prófa hann fyrst en hann kom
mér mjööög á óvart - það er ekkert smá auðvelt að blanda hann út en ég átti einmitt von á því að
það yrði vonlaust. Mér finnst best að nota rakann Beauty Blender til að dreifa úr farðanum og er
þekjan nokkuð góð en náttúruleg á sama tíma. Ég set bara eina umferð þar sem ég fýla létta farða
en ef þig langar í aðeins meiri þekju þá er ekkert mál að byggja hann upp. Annað sem ég hef verið
að nota og elska er Chubby Stick Sculpting Contour og nota ég þetta "stick" á kinnbeinin og ennið
til að gefa andlitinu smá hlýju og skyggja örlítið - það er sama sagan með þessa vöru, það er ekkert
smá auðvelt að blanda henni og er ég orðin húkt á þessu. Persónulega finnst mér Beauty Blenderinn
bestur að blanda út kremvörum en ég hef líka verið að nota Clinique Buff Brush og það kemur mjög
vel út - hann er frekar þéttur í sér og skilur ekki eftir neinar rákir á andlitinu.
Allar þessar vörur frá toppeinkunn frá mér og mæli ég heldur betur með - ég fékk svo líka nýja
Beyond Perfecting farðann og ætla ég að fara í að prófa hann á næstu dögum! Ég vona að þið
eigið yndislega helgi en ég ætla aðeins að taka mér smá frí yfir helgina og fara til Chicago með
Níelsi. Hann átti afmæli í gær og langaði mig svo að bjóða honum í tvær nætur og sýna honum
þessa æðislegu borg sem ég er orðin ástfangin af - þið getið að sjálfsögðu fylgst með okkur á
Snapchat undir @alexsandrabernh ♡
It has been a while since I told you about some beauty products that I am loving so today I am
going to tell you a little bit about these new Clinique goodies that I have been using lately. The
first one is the Chubby in the Nude stick foundation which I was hesitant about at first since I
hadn't tried out a stick foundation before but wow, I absolutely love it now. The coverage is light
but buildable and it blends out so easily. Another thing that I have been loving is the Chubby
Stick Sculpting Contour - works so well to give the face some warmth and contour it a little
bit. I either use a damp Beauty Blender when using these two products or the new Buff Brush
from Clinique which works super well also.
I will be taking the weekend off from the computer but I am going to Chicago tomorrow with
Níels. He celebrated his 26th birthday yesterday so I wanted to invite him to Chicago for two
nights and show him around - really looking forward spending the whole weekend with him.
You can follow me on Snapchat to see what we are up to - you can find me there under
@alexsandrabernh ♡
CLINIQUE redness solution soothing cleanser - naturally gentle eye makeup remover - mild clarifying lotion
Húðumhirða er mér mjög mikilvæg og þess vegna langar mig að deila með ykkur þeim vörum
sem ég er að nota í augnablikinu. Ég hef prófað margar vörur frá mörgun mismunandi merkjum
en vörurnar frá Clinique hafa alltaf reynst mér mjög vel. Ég er með frekar viðkvæma og þurra
húð og legg mikla áherslu á að hugsa vel um hana. Þessar þrjár vörur frá Clinique eru orðnar
uppáhalds vörurnar mínar þegar það kemur að húðumhirðu í augnablikinu. Ég ætla að fara með
ykkur í gegnum rútínuna mína:
1. Ég byrja á því að hreinsa yfirborð húðarinnar með hreinsivatni frá Garnier.
2. Næst tek ég af augnfarðann með Naturally Gentle Eye Makeup Remover.
Þessi vara er æðisleg og pirrar ekki augun mín eins og margir hreinsar gera,
ég nudda vörunni yfir augun og skola með vatni. Hann hreinsar mjög vel
og ég næ öllu af mér með einni umferð.
3. Næst þríf ég húðina með Soothing Cleanser úr Redness Solution línunni.
Þessi hreinsir hentar mér mjög vel þar sem ég er þurr og á það til að verða
smá rauð í kringum nef og munn.
4. Næst set ég Mild Clarifying Lotion í bómul og fer yfir andlitið. Þessi vara
skrúbbar andlitið létt og tekur allar dauðu húðfrumurnar í burtu ásamt því að
gera húðina silkimjúka.
5. Seinasta skrefið er að setja gott rakakrem á mig, ég er að nota Ultra Repair
Cream frá First Aid Beauty.
Ég byrjaði að nota þessar vörur í vetur og björguðu þær húðinni minni, enda verður hún
mjög leiðinleg og þurr í kuldanum. Það er líka kostur að vörurnar frá Clinique eru allar
ofnæmisprófaðar og ættu því að fara vel í alla. Ég mæli með ♥
Today I am talking about my current skin care routines. To read in English, please use
Google Translate. Hugs ♥
Subscribe to:
Posts (Atom)