31.3.17

ASOS WISHLIST // VIKA 13

NIKE logo sweatshirt (HÉR)     ASOS mesh top with floral patches (HÉR)
MISSGUIDED printed bardot dress (HÉR)     ASOS black midi ribbed dress (HÉR)

Jæja - þið vitið hvaða tími vikunnar er! Það er komið að þrettánda Asos óskalista ársins og það er
alveg greinilegt að ég er orðin aðeins spennt fyrir vorinu þar sem það eru byrjaðar að birtast nokkrar
vorflíkur á listunum. Þessi blómakjóll frá Missguided mætti alveg verða minn fyrir sumarið en ég er
svo hrifin af bæði munstrinu á honum og sniðinu. Hinn kjóllinn virkar alltaf og það er það sem ég
elska við hann - hann er svo einfaldur og virkar bæði hversdags og við fínni tilefni. Það skemmir 
svo ekki að svona kjólar eru ótrúlega þægilegir!

Annað sem má svo verða mitt er þessi peysa frá Nike en hún er einum of kósý - ég á þessa frá Nike
fyrir og nota hana rosalega mikið svo ég væri ekkert á móti því að bæta nýrri við. Elska að vera í
svona peysum dagsdaglega við leggings og strigaskó - fullkomið 
SHARE:

No comments

Post a Comment

xoxo

Blogger Template Created by pipdig