CHANEL BOY BAG iphone case
Chanel "Boy Bag" taskan er það fallegasta sem ég hef litið augum á - ég sé hana út um allt þegar
ég skoða tískublogg og myndir frá tískuvikunum. Ég varð þess vegna að kaupa þetta fína hulstur
þegar ég sá það um daginn á einu bloggi - hversu sætt?!
Þúsund þakkir fyrir öll fallegu commentin sem þið skilduð eftir í gjafaleiknum - ég var með feitt bros
á andlitinu þegar ég las þau öll! Það er svo gott að fá "feedback" frá ykkur um hvað ykkur öllum finnst
skemmtilegast að sjá og hvað þið viljið sjá meira af. Þið megið alveg vera mun duglegri að skilja eftir
comment á færslurnar, sama hvort það sé hrós eða spurning, ekki vera feimin! Það er mun skemmtilegra
að vita að fólk sé að lesa og fá tækifæri til að sjalla við ykkur. En eftir að hafa lesið yfir öll commentin
er greinilegt að ég þarf að sýna ykkur meira af íbúðinni minni, fleiri outfit og snyrtivörur. Þið gáfuð mér
mjög góðar margar hugmyndir sem ég mun fara í á næstu vikum - TAKK fyrir fallegu orðin ♥
Þið getið ennþá tekið þátt í gjafaleiknum HÉR.
__________________________________________
How cute is this mini Chanel Boy Bag iPhone case - I love the bag itself so I just had to get his
mini one. So cute ♥
Pretty bag :)
ReplyDeleteMuilo Burbulai
Er þessi ekta? Hvað kostar svona? :)
ReplyDelete-Anna
hæ! þetta er ekki taska heldur símahulstur - ef ég ætti ekta tösku þá byggi ég í pappakassa haha!
ReplyDeleteen þetta kostaði bara rúmar 1000 kr. á ebay xx
aah so cute !
ReplyDeleteIt really is gorgeous! I didn't even realise it was an iPhone case though!
ReplyDelete