Þessi færsla er ekki kostuð.

Jæja, er ekki löngu kominn tími til að sýna ykkur lokaútkomuna á baðherberginu okkar?! Það er að
sjálfsögðu löngu tilbúið en ég gleymdi alltaf að mynda það og sýna ykkur en ef þið eruð með mig á
Snapchat (@alexsandrabernh) þá eruð þið löngu búin að sjá það. Við byrjuðum semsagt að gera það
upp í apríl og var þetta frekar erfitt ferli - þú getur séð fyrir myndirnar HÉR en það þurfti að rífa allt
út af baðherberginu, skipta um lagnir, færa niðurfallið og fleira. Við vorum því til dæmis sturtulaus í
heilan mánuð og þar sem hvorug fjölskyldan mín og Níelsar búa í Reykjavík þá vorum við fastagestir
í Sundhöll Reykjavíkur sem var ansi leiðinlegt og kostaðarsamt - þetta var samt svo þess virði núna
þar sem ég er gjörsamlega ástfangin af baðherberginu okkar og er breytingin ekkert smá mikil.

Þar sem rýmið er frekar lítið fengum við vinkonu systur Níelsar til að teikna upp baðhergið fyrir
okkur til að sjá hvernig við gætum nýtt það sem best. Hún teiknaði upp innréttinguna líka fyrir
okkur og fæ ég margar spurningar um hana - bæði vaskaskápurinn og speglaskápurinn á veggnum
er sérsmíðað og er frá Grindinni í Grindavík. Það er enginn smá munur að vera með skápapláss inn
á baði en fyrir voru engir skápar inn á baðherberginu sem gekk auðvitað ekki. Við rifum baðkarið
í burtu og gerðum sturtu með glervegg - hún er ekkert smá djúp og þægileg! Við notuðum gráar
flísar á gólfið, upp vegginn þar sem glugginn er og inn í sturtuna en þær fengum við afgangs frá
tengdaforeldrum mínum. Hvítu "subway" flísarnar á veggnum eru úr Byko og ég elska þær - við
eigum meira að segja afgang af þeim og langar mig að nota þær inn í eldhúsi! Við keyptum svo
öll blöndunartæki, klósettið og vaskinn í Ísleifi Jónssyni og seinast en ekki síst er það borðplatan.
Ég sagði við Níels að mig langaði í marmaraborðplötu og hann hló bara - ég náði greinilega
 aðeins að mýkja hann en á endanum ákváðum við að fá okkur marmara og guð minn, ég er 
ástfangin 

Ef þið eruð með eitthverjar spurningar um hvaðan eitthvað er eða um ferlið þá megið
þið endilega skilja eftir comment hér fyrir neðan og ég svara ykkur þar!



I am finally sharing with you the after pictures of our bathroom - as you may remember we
redid it this summer and it is finally all ready. It is a pretty small bathroom but after we tore
the bathtub and put in a shower with a glass wall it got so much bigger - my favourite thing
are the white subway tiles and the marble countertop 


Æj, þið vitið ekki hversu erfitt það var fyrir mig að birta þessa færslu en þið sem hafið fylgst með
mér lengi vitið að ég hef aldrei verið hrifin af baðherberginu okkar - nú vitið þið afhverju haha!
Eins og sést á myndunum þá var ekkert varið í það áður og reyndi ég að gera það eins sætt og ég
mögulega gat. Við vorum með baðkar með sturtu í sem ég hataði, enda er ég ekki rosalega mikil
baðkona og fór ég bara tvisvar sinnum í bað í þessu baðkari á 3 árum. Baðkarið var líka brotið og
földu fyrri eigendur það með blómalímmiðum (ég er ekki að djóka!) - svo voru flísarnar á gólfinu
mjög spes eins og sést og eins og þau gerðu bara eitthvað. Það kom svo í ljós að þessar flísar voru
rándýrar granítflísar og fékk ég smá samviskubit að láta rífa þær í burtu en guð minn góður hvað
nýju flísarnar eru flottar! Mér finnst eiginlega ótrúlegt að skoða þessar myndir þar sem breytingin
er svo rosaleg og baðherbergið er einu sinni ekki klárt - við erum að bíða eftir sturtuglerinu, nýjum
glugga og innréttingunni sem er sérsmíðuð fyrir okkur. Þetta verður svo flott og ég get ekki beðið
eftir að sýna ykkur lokaútkomuna eftir rúmar tvær vikur en þá eigum við von á restinni af dótinu.

Nú ætla ég að hoppa í nýju sturtuna mína sem var sett upp í gær - þið vitið ekki hversu gott það
er að vera loksins komin með sturtu eftir að hafa verið fastagestur í Sundhöll Reykjavíkur í heilan
mánuð. Ég minni á Snapchattið mitt en ég er dugleg að deila með ykkur update af baðherberginu
þar - finnið mig undir @alexsandrabernh 


You have no idea how hard it was for me to press "publish" on this post. If you have been following
me for a while you might know that I have never shown you any pictures of our bathroom and now
you know why haha - it is not the prettiest. Well, it really doesn't look like this anymore because a
month ago we took everything out of it and started redoing it. Before we had a broken bathtub with
a shower and the cracks in the tub were covered with tape in the shape of a flower (I am not kidding).
The tile on the floor were also just something as you can see but we later found out that they were
super exspensive granit tiles (oops) but I am so excited about the new tiles. They just finished them
yesterday and oh my, it looks so good! We are now just waiting for the glass for the shower, a new
window and the cabinets - hopefully I can show you the finished result in about two weeks.

Now I am going to get in my brand new shower and just stay there for an hour - you have no idea
how good it feels to finally have a shower here at home after being a regular at the pool for the last
month. If you want to see some sneak peeks of our new bathroom you can find me on Snapchat 
under @alexsandrabernh 
Blogger Template Created by pipdig