ZARA skyrtukjóll H&M maternity gallabuxur BIRKENSTOCK sandalar SAINT LAURENT taska
LOKSINS! Er það ekki það sem við erum öll að segja - loksins fáum við almennilegt veður á þessu
skeri þetta sumarið. Þegar ég ímyndaði mér að vera í barneignarleyfi allt sumarið þá hugsaði ég um
að eyða miklum tíma á pallinum, niðrí bæ með vinkonum að njóta og í göngutúrum en nei, ég hef
eytt meirihlutanum af orlofinu inni vegna veðurs svo ég er ótrúlega ánægð að fá loksins tækifæri til
að eyða tíma úti og njóta sólarinnar. Það er einmitt það sem ég gerði í dag en ég kíkti í hádegismat
með Þórunni á Jamies Italian en pastað þar er svo ruglað gott að ég var að kreiva það. Við sátum þar
og spjölluðum og röltum svo aðeins um miðbæinn. Ég klæddist þessari skyrtu úr Zara sem ég keypti
mér fyrir stuttu en ég keypti mér hana í ólífugrænu þegar ég var stödd í Feneyjum og varð að eignast
hana í hvítu líka. Svo fullkomin ,,basic" flík sem passar við allt og það besta er að hana er hægt að
nota með bumbu og ekki - klárlega nýtt uppáhald í fataskápnum ♡
Post a Comment
Þessi færsla er ekki kostuð // Kápuna keypti ég mér sjálf.
Eins og ég sagði ykkur í seinustu færslunni minni þá kíkti ég í Zara fyrir helgi til að athuga með
jakka sem var svo uppseldur. Í staðinn kom ég heim með tvo aðra hluti - þessa kápu og flatbotna
upphá stígvél sem ég skal sýna ykkur seinna. Það voru ekkert smá margar kápur sem heilluðu mig
í þessari heimsókn en ég kolféll fyrir þessari og varð að leyfa henni að koma með mér heim. Hún
er ekkert smá flott og kósý á sama tíma en mér verður pottþétt ekki kalt í þessari í vetur. Ég elska
litinn á henni og finnst hann tóna svo vel við rauða hárið og svo elska ég kragann líka - þægilegt að
geta haft hann opinn eða lokað honum þegar það verður aðeins kaldara úti. Ég á ansi margar kápur
úr Zara og mér finnst verðið alltaf mjög gott miðað við gæðin - þær endast lengi og kosta ekki það
mikið að mínu mati. Þessi var á 16.995 krónur og er ég alveg í skýjunum með hana ♡
As I mentioned in my last post I stopped by Zara last week to check out a jacket that turned
out to be sold out. Instead I came home with two other things - this coat and flat suede over
the knee boots that I will show you later. There were so many coats that caught my attention
but I fell for this one and had to take it home with me. I love the navy colour and the collar,
you can wear it open like this or close it when it gets a bit colder outside. This one will be
a favorite of mine, I am sure of that ♡
Plönin mín breyttust aðeins en eins og ég sagði ykkur í seinustu viku þá ætlaði ég að nýta helgina
í að taka outfit myndir fyrir bloggið - veðrið í morgun var alveg æðislegt en Níels þurfti að fara að
vinna svo ég var ljósmyndaralaus. Ég dó samt ekki ráðalaus og smellti því nokkrum speglamyndum
hjá mér) og dökkbláa kápu úr Zara ♡
My plans changed a bit but I told you last week that I was planning on using the weekend to
shot outfit photos - the weather this morning was amazing but Níels had to go to work so I
was without a photographer. I decided to take some pictures here at home - better than nothing.
Zara ♡
Subscribe to:
Posts (Atom)



