Vörurnar í þessari færslu voru fengnar sem gjöf.
LOKSINS LOKSINS LOKSINS! Ég er búin að vera að lofsyngja þennan farða á Snapchat seinustu
vikur en loksins er hann kominn í sölu hérlendis ásamt fleiri vörum úr sömu línu. Farðinn sem um
ræðir heitir All Hours og er frá YSL en í línunni er einnig farðagrunnur, hyljari, svampur og svo
púður. Ég verð að viðurkenna að fyrst, áður en ég prófaði, var ég ekki of heilluð af farðanum en
hann er auglýstur sem farði með mikla þekju og matta áferð. Vanalega henta þannig farðar mér
ekki en eftir að ég horfði á myndbandið hennar Tati þar sem hún fjallar um hann og prófar þá
varð ég ótrúlega spennt fyrir honum. Nokkrum dögum seinna var ég stödd í Seattle og ákvað
að rölta í Sephora og fá prufu af farðanum þar sem hann var ekki kominn í sölu heima. Það
kvöld flaug ég heim frá Seattle og var flugið um 7 klukkutímar - ég ákvað að þetta væri gott
tækifæri til að prófa farðann almennilega og vá! Eftir svona langt næturflug heim í þurru lofti
þá var farðinn ennþá fullkominn þegar ég lenti heima, ég var í sjokki.
Ég hef verið að nota farðann í nokkrar vikur og ég trúi því ekki enn þá hversu góður hann
virkilega er. Hann hylur ótrúlega vel en að mínu mati er hann ekki alveg mattur eins og þau
vilja meina - mér finnst áferðin vera meira náttúruleg og það lætur mig bara elska hann
meira. Endingin er líka ótrúleg en ég get farið með hann í flug klukkan sex að morgni og
komið heim tólf tímum seinna og það sést ekki á húðinni. Mér finnst samt nauðsynlegt að
setja gott rakakrem undir farðann þar sem ég er með yfirborðsþyrrk en farðinn ýkir það
ekki eins og flest allir þekjandi farðar gera vanalega. Ég er að byrja að prófa mig áfram
með hinar vörurnar úr línunni og lofa þær strax góðu ♡
Post a Comment
Farðann fékk ég sem gjöf frá Yves Saint Laurent á Íslandi.
Ég er kannski aðeins of sein að lofsyngja þennan farða en hann er búinn að vera í stanslausri notkun
hjá mér seinustu vikur. Touche Éclat farðinn frá Yves Saint Laurent hefur lengi verið mjög vinsæll
farði og í fyrra endurbættu þeir formúluna en í ár gáfu þeir farðann út í svokölluðu "cushion" formi.
Mér finnst svona "cushion" farðar mjög skemmtilegir og mun þægilegri í notkun en blautir farðar.
Mér finnst algjör kostur að geta verið með farðann í veskinu þegar ég er að fara út eða þegar ég er
í flugi og lagað mig yfir daginn.
Ekki nóg með það að umbúðirnar eru gullfallegar og þægilegar þá er farðinn sjálfur einn sá besti
sem ég hef prófað og er ég búin að klára eina dollu nú þegar og bráðvantar aðra. Farðinn er mjög
léttur en á sama tíma hylur hann allt sem hann þarf að hylja og jafnar húðlitinn. Það sem ég elska
mest við hann er þó áferðin - húðin verður svo ljómandi og heilbrigð. Þetta er hinn fullkomni
farði fyrir ykkur sem viljið létta farða með miðlungs þekju og ljómandi áferð - ég gæti ekki mælt
meira með honum og þá sérstaklega ef þið eruð með þurra húð eins og ég ♡
Vörurnar frá Yves Saint Laurent fást í Hagkaup Smáralind, Skeifunni, Garðabæ og Akureyri, Lyf&Heilsu
Kringlunni og Bjargi Akranesi.
Kringlunni og Bjargi Akranesi.
Þessi færsla er ekki kostuð // Töskuna keypti ég mér sjálf.
Ég held að það sé löngu kominn tími til að kynna ykkur fyrir nýjustu viðbótinni við fjölskylduna
(nei ég er ekki að djóka) en segið hæ við Lárent Bernharð. Ég sá hann fyrst um áramótin á smá
Pinterest rúnti og það gerðist eitthvað, ég varð ástfangin við fyrstu sýn. Ég keypti mér mína fyrstu
merkjatösku í lok sumarsins 2016 og voru því önnur kaup alls ekki í plönunum á næstunni en um
leið og ég sá þessa þá vissi ég að hún yrði mín bráðlega. Nokkrum vikum seinna fór ég í helgarferð
til Köben með Níelsi og ég vissi að þar væri Saint Laurent búð. Ég kíkti í hana fyrsta daginn en því
miður var taskan ekki til í þeirri stærð og þeim lit sem mig langaði í svo ég fór heim tómhent.
Fyrir rúmum þremur vikum var ég stödd í London í smá fríi með fjölskyldunni minni og ég ákvað
að reyna aftur á þetta og viti menn, þarna var hún í réttri stærð og réttum lit að bíða eftir mér. Ég er
alveg í skýjunum með hana og er nú þegar búin að nota hana næstum daglega síðan ég kom heim.
Ég veit að margir skilja ekki þetta að kaupa sér dýrar töskur þar sem þetta er óþarfa hlutur en mig
langaði að fjárfesta í henni þar sem hún mun vera mín að eilífu og hönnunin á henni er svo klassísk.
Ég elska stærðina á henni en ég valdi mér miðlungsstærðina - það kemst nóg fyrir í henni en á sama
tíma er stærðin svo þægileg upp á að hafa hana á öxlinni í langan tíma. Það er eitt lítið handfang á
henni og löng keðja svo það er hægt að hafa hana bæði "crossbody" og halda á henni sem mér finnst
vera algjör kostur. Þessa eigið þið sko eftir að sjá ansi oft ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Yves Saint Laurent á Íslandi // Vöruna fékk ég að gjöf.
Eins og svo margir aðrir hef ég eytt ansi góðum tíma í að finna hinn fullkomna farða sem hentar
minni húð. Ég get ekki sagt ykkur hversu marga farða ég hef prófað en um daginn fattaði ég að
ég væri löngu búin að finna þann sem hentaði mér best og ekki bara það, ég var búin að vera að
nota hann í að verða þrjú ár. Ég kynntist BB kreminu frá YSL þegar ég byrjaði að vinna með
merkinu árið 2014 og hef notað það síðan þá. Ég hef alltaf verið að prófa nýja farða og önnur
krem með en alltaf leitað í þetta krem aftur og aftur. Um daginn kláraði ég báðar túpurnar sem
ég átti og þá fattaði ég hversu háð því ég er - ég gat ómögulega verið án þess.
Þetta er ekki farði heldur er þetta BB krem og er það eitthvað sem mér finnst vera algjör kostur.
Mér finnst farðar stundum of þekjandi og þar sem ég fýla náttúrulega áferð frekar þá henta BB
krem mér mjög vel. Þegar ég vill eitthvað aðeins meira þá finnst mér algjör snilld að blanda smá
af farða við BB kremið! Þetta krem frá YSL er svo ótrúlega létt, gefur húðinni fallegan ljóma og
jafnar húðlitinn - einmitt það sem ég þarf og er að leita að ♡
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Yves Saint Laurent á Íslandi // Vörurnar fékk ég sem gjöf.
Íík, ég get ekki hætt að stara á þessar myndir - ég gjörsamlega elska hversu fallegar þessar vörur
frá Yves Saint Laurent eru! Eins og þið eflaust vitið þá er merkið eitt af mínum allra uppáhalds
snyrtivörumerkjum og finnst mér alltaf jafn gaman að deila með ykkur vörum frá merkinu. Mín
uppáhalds vara frá merkinu er All-In-One BB kremið en það er eitthvað sem ég gæti ómögulega
lifað án (svona í alvörunni, farið bara núna út í Hagkaup og nælið ykkur í það). Um daginn fékk
ég nokkrar nýjar vörur frá merkinu sem eru nýkomnar í verslanir og er ein vara sem stendur upp
úr og það er að sjálfsögðu nýr farði. Ég er búin að bíða ótrúlega spennt eftir þessum farða lengi
en þetta er Encre De Peau farðinn eða Fusion Ink í "cushion" formi. Upprunalegi farðinn finnst
mér æðislegur á sumrin, en þar sem hann þornar frekar mattur á húðinni þá hentar hann mér ekki
á veturna þar sem húðin mín er mjög þurr. Cushion farðinn á hins vegar að vera meira ljómandi
og því var ég mjög spennt að prófa hann.
Það sem mér finnst vera best við þennan farða eru umbúðirnar. Þar sem ég ferðast mikið þá
vill ég helst ekki vera með fljótandi farða í flugfreyjuveskinu og er þessi því mjög hentugur
fyrir mig. Það er líka mjög auðvelt að fríska upp á farðann yfir daginn og bæta á hann ef þess
þarf sem mér finnst æðislegt. En yfir í farðann sjálfann - það sem kom mér mest á óvart er
hversu mikil þekja er í honum. Ég nota Beauty Blender til að setja hann á og þarf ég bara að
dýfa honum einu sinni ofan í farðann til að fá nóg fyrir allt andlitið. Það er fullkomið svona
klukkan fimm á morgnanna þegar maður er með bauga fyrir allan peninginn! Hann er ekki
eins mattur og fljótandi farðinn en hann er ekki of ljómandi - hann er bara fullkominn að
mínu mati. Ég gæti ekki mælt meira með þessum farða en þetta er nýtt uppáhald hjá mér!
Ég fékk nokkrar vörur í viðbót en ég hef ekki haft tíma til að leika mér með þær allar enn
en það eru tvær vörur í viðbót sem ég er að elska. Fyrsta varan er Lip Perfector en þetta er
æðislegur varasalvi sem nærir þurrar varir og "exfoliatar" þær líka svo þær verða ótrúlega
mjúkar og fínar. Þessi er búinn að vera í veskinu mínu síðan ég prófaði hann fyrst og er
ekkert á leiðinni neitt! Hin varan er nýr varalitur en hann heitir Vernis Á Lévres Vinyl
Cream og er í litnum 404 Nude Pulse - þetta er fullkominn nude litur með svo fallegri
áferð, elska hann. Vörurnar frá Yves Saint Laurent fást í Lyf & Heilsu Kringlunni og
nokkrum verslunum Hagkaups ♡

Vöruna fékk ég senda sem sýnishorn - ég nota litinn B10.
Fyrir ekki svo löngu kom nýr farði á markaðinn frá Yves Saint Laurent. Ef þið hafið fylgst með
blogginu mínu lengi þá vitið þið að Yves Saint Laurent er eitt af uppáhalds merkjunum mínum og
var ég mjög spennt þegar ég frétti af þessari nýjung. Þetta er semsagt nýr Touche Éclat farði og er
eiginlega upprunalegi Touche Éclat farðinn endurbættur - hann var rosa vinsæll en ég hef aldrei
prófað hann svo ég vissi í raun og veru ekki við hverju ég ætti að búast. Ég er gjörsamlega klikkuð
í farða og er það örugglega sú vara sem ég er mest hrifnust af þegar það kemur að snyrtivörum, því
var ég mjög spennt að prófa hann.
Ég er búin að nota farðann í rúmar þrjár vikur núna, sem er ekkert rosalega langur tími en hingað
til er ég virkilega hrifin. Farðinn er í léttari kantinum en gefur samt góða og ljómandi þekju - ég er
með þurra húð svo ég þarf að passa mig að vera búin að undirbúa hana vel áður en ég nota farðann.
Ég myndi hafa það í huga ef þú ert þurr. Það er SPF 22 í honum og ég fékk líka þennan bursta með
sem er ótrúlega skemmtilegur - það er Y í hárunum og þar á maður að setja farðann og bera svo á
andlitið. Burstinn er fínn en ég teygi mig frekar í Beauty Blenderinn minn þar sem mér finnst það
mun þægilegra. Ég hef þó notað burstann í hyljara og það var æði - hann er mjög þéttur svo hann
gefur góða þekju. Ég ætla að deila með ykkur kostum og göllum við farðann hér að neðan.
Recently Yves Saint Laurent came out with an advanced formula of their popular Touche Éclat
foundation. If you have been following my blog for a while you probably know that Yves Saint
Laurent is one of my all time favourite make up brands so you can imagine how excited I was
to try out this foundation. I have never tried out the original one so I didn't really have any clue
what to expect. I am such a foundation hoarder and it is definitely my favourite thing to buy
when it comes to make up and beauty.
I have now been using this foundation for about three weeks, which isn't that long of time but
so far I really like it. It is more on the light side but it gives such a nice and glowy finish. I have
dry skin so it is necessary for me to prep it really well before using this so if you are on the dry
side it is good to keep that in mind. It has SPF 22 and I also got this nice brush with it - it is nice
but I find myself reaching for my Beauty Blender since it's just a personal preference. I have used
the brush for concealer though and it worked really well. I am next going to share with you the
pros and cons of this foundation.
Kostir:
· Hann er léttur á húðinni
· Hann gefur ljómandi áferð
· Hann hylur mjög vel
· Hægt að byggja hann upp
· Lyktin af honum er góð
· Hann er með pumpu
· Helst vel á yfir daginn
Gallar:
· Ég verð smá olíukennd í
kringum nefið eftir því sem
líður á daginn, nauðsynlegt
að púðra yfir farðann
· Þarf að undirbúa húðina vel
Eins og þið sjáið þá eru kostirnir mun fleiri en gallarnir og mér finnst gallarnir í raun og veru
ekkert gallar - þeir pirra mig ekkert rosa mikið. Ég myndi segja að þessi farði er kominn í top
3 af uppáhalds förðunum mínum og er ég virkilega hrifin af honum - ég mæli sko heldur betur
með ♡
Pros:
· Feels light on the skin
· Gives a glowy finish
· Covers really nicely
· You can build it up
· Smells nice
· Has a pump
· Stays on all day
Cons:
· I get kind of oily
around the nose after
wearing it all day
· Have to prep my skin
As you can see the pros definitely outweigh the cons and to be honest, the cons really don't
bother me. I can say that this foundation is in my top 3 of favourite foundations and I am
really impressed - I recommend it ♡
VÖRUNA FÉKK ÉG SENDA SEM SÝNISHORN.
Í seinustu viku var mér boðið á smá event hjá YSL á Íslandi ásamt nokkrum fleiri bloggurum.
Tilefnið var ný vara sem YSL var að koma með á markað og var ég búin að vera svo forvitin
alveg síðan ég fékk boðskortið! Ég var sko alls ekki fyrir vonbrigðum en hér fyrir ofan er þessi
nýja vara sem er nú komin í sölu hér heima - Intant Moisture Glow er létt rakakrem sem gefur
raka sem endist í 72 klst. Ásamt því að gefa húðinni raka þá "blörrar" það einnig húðina og
gefur henni ljóma.
Ég fór strax heim og prófaði kremið en einn kostur við það er að það er hægt að nota kremið
bæði undir og yfir farða. Það sem ég geri er að ég ber kremið á húðina mína áður en ég set á
mig farða - hún verður ekkert smá mjúk og ljómandi. Ég leyfi kreminu að fara inn í húðina og
svo set ég á mig farða - það er mun auðveldara að bera farðann á með kremið á húðinni, enda
gerir það húðina silkimjúka! Mér hafði aldrei dottið í hug hversu góð þessi vara væri en það
er frekar erfitt að lýsa ást minni á henni í gegnum bloggið! Ég ætla að sýna ykkur kremið betur
á Snapchat á morgun og einnig hvernig ég nota það - ef þið viljið sjá það þá finnið þig mig þar
undir @alexsandrabernh x
Last week I was invited to an event hosted by YSL among with other bloggers. YSL just came
out with a new product that they were introducing to us and they had kept the product a secret
until we got there. I was super curious and was certainly not disappointed with the product!
It is called Instant Moisture Glow and it is an light moisturiser which gives your skin amazing
hydration for up to 72 hours. It is also blur perfecting and gives your skin the nicest glow.
After the event I hurried home to try the product out but you can use it under your make
up or over it to freshen up. What I like to do is to apply it to clean skin - it makes the skin
so soft and glowy. I let it dry for a couple of minutes and then apply foundation - because
I used the moisturiser as a base, it is so much easier to apply the foundation and I love the
finish it gives me. I was expecting a good product from YSL (all of their stuff is amazing)
but this one blew me away, so good! x

· Get that perfect bronze ·
Í byrjun sumars fékk ég fallega gjöf frá YSL sem er orðið eitt af mínum uppáhalds snyrtivörumerkjum.
Það var að koma ný vara frá þeim á markað sem heitir Les Sahariennes og er svokallað balm-to-powder
sólarpúður. Fyrst var ég ekki alveg viss um þetta, áferðin var ólík öðru sem ég hef prófað og ég var smá
hrædd um að það myndi vera erfitt að blanda litinn og fá fallega sólarkyssta áferð EN eftir að hafa prófað
hana þá get ég sagt að þessi vara er algjör snilld, eins og allar aðrar vörur sem ég hef prófað frá YSL.
Ég hef verið að nota þessa vöru núna dagsdaglega enda er þetta nýja uppáhalds aðferðin mín til að
fá smá hlýju í andlitið og gera húðina sólarkyssta eða "sunkissed" (ég þarf nú vel á því að halda). Ég
set sólarpúðrið á með fingrunum og blanda því út með rökum Beauty Blender, mér finnst það vera
langbesta aðferðin og auðveldasta. Áferðin sem púðrið gefur er fullkomið, matt og það minnkar
einnig útlit svitahola. Ég fékk púðrið í lit nr. 4 sem mér finnst henta mér mjög vel - algjör must
have vara frá YSL að mínu mati x
___________________________________________
In the beginning of the summer I got this lovely present from YSL which has become one of my
favorite beauty brands. They just launched a new bronzer called Les Sahariennes which is a
balm-to-powder bronzer. At first I wasn't quite sure about it, the texture was weird and I was
afraid that it wouldn't blend easily BUT after trying it out I am in love. It's such an amazing
product just like the others that I have from YSL.
I have been using this bronzer every day for the last couple of weeks and this is my new
favorite way of bronzing my face and giving it some warmth. I apply it with my fingers
and use a damp Beauty Blender to blend it, super easy. You get a flawless finish, sunkissed
skin and it minimises the appearance of pores. I have it in nr. 4 and it works perfectly with
my fair skin - a must have product from YSL in my opinion x
Subscribe to:
Posts (Atom)